Skýrsla miðstjórnar Alþýðusambands Íslands um starf sambandsins 1946-1948 - 14.11.1948, Síða 48
öðrum tilfœringum, sem kommúnistahreyfingin hefur lifað á og cetlar
sér að gera framvegis
Þetta þarf ekki skýringa við.
Þar, sem þeir stjórna
Síðan sameiningarmenn tóku forystuna fyrir Alþýðusambandi ís-
lands, hafa þeir flokksofstækismennirnir við „Alþýðublaðið" mitt i
skemmdarstarfi sínu, svo sem kunnugt er, ekki klipið við neglur sér
ádeilur sínar í garð sameiningarmanna, sem á þeirra máli heita allir
„kommúnistar".
Þess vegna er rétt að skyggnast eftir því, hvernig umhorfs er i
hagsmunamálunum á nokkrum stöðum, þar sem Alþýðublaðsmenn
stjórna, svo unnt sé að leiða getur að því hvernig ástandið yrði í
þessum efnum á landsmælikvarða, ef tilboði þeirra um að taka við
stjórn heildarsamtakanna yrði tekið.
Sjómannofélag Reykjavíkur
Svo sem að framan er sýnt, hefur stjórn Sjómannafélags Reykja-
víkur unnið markvisst að því að halda niðri hagsmunabaráttu sjó-
manna, t. d. ekki sett sig úr færi að undirbjóða önnur félög í samn-
ingum, þannig, að ef stefna hennar hefði fengið að ráða óhindruð,
er augljóst að kjör sjómanna væru litið sem ekkert breytt nú frá þvi
fyrir stríð.
Verkakvennafélagið „Framsókn"
Það er staðreynd, að í höfuðstað landsins er nú eitt lægsta tíma-
kaup verkakvenna sem þekkist hér á landi. Jafnvel afskekktir smá-
staðir, eins og t. d. Grundarfjörður, eru komnir upp fyrir „Fram-
sókn" í samningsbundu grunnkaupi. Þetta ástand í höfuðstað lands-
ins, sem hefur verið áður fyrr á undan i flestum greinum hagsmuna-
baráttunnar, hefur gert þetta félag, og þó einkum forystu þess, að
fargi á hagsmunabaráttu verkakvenna um land allt.
48