Skýrsla miðstjórnar Alþýðusambands Íslands um starf sambandsins 1946-1948 - 14.11.1948, Blaðsíða 57
lendra hafna og fiskimiðanna, skal jafnan skipta sólarhringnum í
fjórar sex stunda vökur eða tvær tólf stunda vökur, eftir því sem
hásetar á viðkomandi skipi kjósa heldur. Skal eigi nema helmingur
háseta skyldur að vinna í einu, en hinn helmingurinn eiga hvíld, og
skal hver háseti hafa að minnsta kosti 12 klukkustunda hvíld á
sólarhring hverjum. Samningar milli sjómannafélaga og útgerðar-
manna um lengri vinnutíma en fyrir er mælt í grein þessari skulu
ógildir vera.
2. gr. — 4. gr. laganna orðist svo:
Skipstjóri og útgerðarmaður bera sameiginlega ábyrgð á því, að
fyrirmælum þessara laga sé fylgt, og varðar ítrekað brot skipstjóra
stöðumissi.
3. gr. — í stað „1000—10000“ í 5. gr. laganna komi: 5000—50000.
4. gr. — Lög þess öðlast þegar gildi.
Frumvarp þetta hlaut þá afgreiðslu á þessu þingi að þvi var að
lokinni 1. umræðu visað til sjávarútvegsnefndar. Eftir að nefndin
hafði fengið málið til meðferðar, leitaði hún umsagnar sjómanna-
félaganna í Reykjavík og Hafnarfirði svo og Landssambands islenzkra
útvegsmanna. Fékk nefndin fljótlega svör frá Sjómannafélagi Hafnar-
fjarðar, er lagði til, að frumvarpið yrði samþykkt, og Landssambandi
islenzkra útvegsmanna, er lagði til, að það yrði fellt. Svar barst hins
vegar ekki frá Sjómannafélagi Reykjavíkur, og hefur það félag ekki
til þessa tekið neina afstöðu til þessa mikla velferðarmáls hinnar
islenzku sjómannastéttar.
Sjávarútvegsnefnd klofnaði í málinu. Meiri hlutinn, fulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins, Sigurður Kristjánsson og Pétur Ottesen, og fulltrúi
Framsóknarflokksins, Skúli Guðmundsson, lögðu til í áliti sínu, sem
útbytt var 17. apríl 1947, að frumvarpið yrði fellt, en minni hlutinn,
fulltrúi Sósíalistaflokksins, Áki Jakobsson, lagði eindregið til í áliti
sinu, sem útbýtt var 17. apríl 1947, að frumvarpið yrði samþykkt.
Fulltrúi Alþýðuflokksins í nefndinni, Finnur Jónsson, taldi sig hins
vegar ekki við því búinn að taka afstöðu til málsins og skilaði engu
áliti.
Eftir að álit sjávarútvegsnefndar lá fyrir, var tregða við að taka
roálið á dagskrá, en eftir ítrekaðar tilraunir fékkst það tekið fyrir 5.
maí, og eftir það 6., 7., og 8. og 23. maí. En svo einkennilega brá við,
57