Skýrsla miðstjórnar Alþýðusambands Íslands um starf sambandsins 1946-1948 - 14.11.1948, Page 124
mannafélagsins Vals i Búðardal og Kaupfélags Hvammsfjarðar. Sam-
kvæmt hinum nýja samningi hækkar grunnkaup verkamanna i dag-
vinnu úr kr. 2.65 i kr. 2.80 um klst. Grunnkaup verkakvenna og
drengja 14—16 ára hækkar úr kr. 1.85 í kr. 2.00 á klst. í eftirvinnu
greiðist 50% álag og í nætur- og helgidagavinnu 100% álag á dag-
vinnukaup.
Nýr kjarasomningur verkamanna á Húsavík
Þann 1. maí var undirritaður nýr kjarasamningur milli Verka-
mannafélags Húsavíkur og atvinnurekenda þar. Samkvæmt hinum
nýja samningi hækkaði grunnkaup verkamanna í almennri dag-
vinnu úr kr. 2.45 í kr. 2.70 á klst., grunnkaup í skipavinnu hækkaði
úr kr. 2.60 í kr. 2.85 á klst., grunnkaup í skipavinnu við kol, síldar-
mjöl, lýsi og saltsíld hækkaði úr kr. 3.25 í kr. 3.30 á klst. og upp-
skipun á sementi, losun þess 1 hrærivélar, vinna við loftþrýstivélar
hækkaði úr kr. 2.95—3.25 i kr. 3.55 á klst. Grunnkaup í grjótnáms-
vinnu hækkaði úr kr. 2.75 í kr. 3.00 á klst. Grunnkaup unglinga
yngri en 16 ára hækkaði úr kr. 1.80 í kr. 2.00 á klst. og skipavinna
unglinga úr kr. 2.20 í kr. 2.25 á klst. Samkv. samningnum er grunn-
kaup bifreiðastjóra kr. 600.00 á mánuði, séu þeir ráðnir allt að 6
mánuðum, en kr. 550.00 á mánuði séu þeir ráðnir lengur en 6 mán-
uði. Tímakaup bifreiðastjóra er kr. 3.10. Eftirvinna greiðist með 50%
álagi og nætur- og helgidagavinna með 100% álagi á dagvinnukaup.
Samningurinn gildir frá og með 1. mai og er uppsegjanlegur með
mánaðar fyrirvara hvenær sem er.
Nýr kjarasamningur verkakvenna á Húsavík
í byrjun maí var undirritaður nýr kjarasamningur milli Verka-
kvennafélagsins Vonar á Húsavík og atvinnurekenda þar. Samkvæmt
hinum nýja samningi hækkaði grunnkaup verkakvenna í almennri
dagvinnu úr kr. 1.80 í kr. 2.05 á klst. Aðrir liðir samningsins hækk-
uðu og hlutfallslega jafn mikið.
Nýr kauptaxti Félags garðyrkjumanna
Hinn 1. maí gekk í gildi nýr kauptaxti hjá Félagi garðyrkjumanna.
124