Skýrsla miðstjórnar Alþýðusambands Íslands um starf sambandsins 1946-1948 - 14.11.1948, Blaðsíða 49
Verkalýðs- og sjómannafélag Gerða- og Miðneshrepps
Á sfðasta aðalfundi þessa félags komst að sem formaður, við mik-
inn fögnuð Alþýðublaðsmanna, maður úr þeirra hópi.
Á undanförnum árum hafði okrið í Sandgerði á beitusíldinni verið
hið mesta vandamál sjómanna, og leiðrétting þessa eitt helzta áhuga-
og hagsmunamál sjómanna þar.
Fyrir ötula framkomu fyrrverandi formanns, sem er sameiningar-
maður, og stjórnar hans, fékkst þvf m. a. framgengt, með 18 daga
verkfalli, að sjómönnum var tryggt með samningi lægsta almennt
gangverð á beitusíldinni.
Við fyrstu samninga hins nýja formanns var þetta dýrmæta ákvæði
látið niður falla og sjómenn aftur ofurseldir hinu gamla okri síldar-
kaupmannanna.
Fleiri hlunnindi, sem fengizt höfðu fram með samningum áður,
voru og látin niður falla, enda samið hér á bak við Alþýðusambandið.
VerkalýSs- og sjómannafélag Keflavíkur
í Keflavík voru verkamenn til skamms tima með óleiðrétt kaup
þrátt fyrir dýrtlðina, meira en ári eftir að Dagsbrún braut ísinn.
Sama væri hægt að segja um Akranes, Borgarnes og Vestmannaeyjar,
ef Dagsbrún hefði eigi fengið áðurnefndar kjarabætur.
Á Keflavíkurflugvellinum hafa keflvískir verkamenn notið tíma-
kaups Dagsbrúnar (2.80 í dagv.).
Hinn ameríski atvinnurekandi þar hefur, svo vitað sé, mánuðum
saman þverbrotið fjölda mörg mikilvæg atriði í gildandi kjarasamn-
■ngum án þess að stjórn Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur hafi
fengizt til að sinna þessu verulega af ótta við það, að hinn erlendi
taxtabrjótur áskildi sér rétt til að lækka kaupið úr Dagsbrúnar-kaupi
niður i Keflavíkurkaup (þ. e. úr kr. 2,80 f kr. 2,65) — ef hann gengi
inn á að fylgja almennum ákvæðum að þvi er snertir vinnuskilyrði
svo sem kaffitíma, matartíma, vinnudag o. fl.
I'annig supu verkamenn Keflavikur seyðið af syndum forystu-
mannanna.
49
4