Skýrsla miðstjórnar Alþýðusambands Íslands um starf sambandsins 1946-1948 - 14.11.1948, Blaðsíða 86
kr. 1,95 á klst. og drengja 14—16 ára sömuleiðis. Stúlkur 14—16 ára
skulu fá kr. 1,50 á klst. Grunnkaup vélstjóra er kr. 650,00 á mán. og
aðstoðarmanna án réttinda kr. 550,00 á mán. I eftirvinnu greiðist
50% álag á dagkaupið og í nætur- og helgidagavinnu 100%. Á allt
kaupið kemur full dýrtíðaruppbót mánaðarlega samkv. útreikningi
kauplagsnefndar. Samningurinn gekk í gildi 16. des. s.l.
Nýr kjarasamniiigur í Stykkishólmi
Þann 11. des var undirritaður nýr kjarasamningur inilli Verka-
lýðsfélags Stykkishólms og atvinnurekenda. Samkvæmt nýja samn-
ingnum hækkaði grunnkaup karlmanna í almennri dagvinnu úr kr.
2,20 í kr. 2,45 á klst. Almenn skipavinna hækkaði úr kr. 2,55 í kr. 2,84
á klst. og skipavinna við kol, salt og sement úr kr. 3,10 í kr. 3,45 á
klst. Grunnkaup kvenna hækkaði úr kr. 1,55 í kr. 1,72 á klst. og
sömuleiðis drengja á aldrinum 14—16 ára. í eftirvinnu greiðist 50%
álag og nætur- og helgidagavinna með 100% álagi. Á allt kaup
kernur full dýrtíðaruppbót mánaðarlega samkvæmt vísitölu kaup-
lagsnefndar.
Tveir vélstjórasamningar á ísafirði
Þann 28. des. var undirritaður kjarasamningur milli Vélstjórafé-
lags ísafjarðar og útgerðarmanna.
Samkvæmt samningnum eru kjör vélstjóranna i meginatriðum sem
hér segir:
Á þorskveiðum með línu og á togveiðum:
a. ÞorskveiOar með linu: Fyrsti vélstjóri W/2 hásetahlut og annar
vélstjóri I14 hásetahlut samkvæmt gildandi samningi Sjómannafélags
Isfirðinga. Báðir vélstjórar fæði sig sjálfir.
b. TogueiOar: Fyrsti vélstjóri 1 hásetahlut og annar vélstjóri 11/
hásetahlut samkvæmt gildandi samningi Sjómannafélags ísfirðinga.
Báðir vélstjórar hafi kr. 120,00 á mánuði i fæðispeninga. Verði hækk-
un á fæðispeningum, sem aðrir skipverjar fá nú greidda samkv.
samningum sinna stéttarfélaga, hækki einnig fæðispeningar vélstjóra
til samræmis við það.
Laun vélstjóra á sildveiðum:
86