Skýrsla miðstjórnar Alþýðusambands Íslands um starf sambandsins 1946-1948 - 14.11.1948, Blaðsíða 60
varp til laga um byggingu verbúða og eftirlit með þeim. Voru í
frumvarpinu ýtarleg ákvæði í 10 greinum um að tryggja það, að að-
búnaður í verbúðum yrði viðunandi. Frumvarpinu fylgdi ýtarleg
greinargerð, þar sem núverandi ástandi í þessum efnum var lýst með
skýrum dæmum og bent á þá brýnu nauðsyn, sem væri á endurbótum.
I lok greinargerðarinnat segir:
„í frumvarpi þessu er gert ráð fyrir, að ríkisstjórnin láti byggja
verbúðir þar, sem þeirra er þörf, og hjálpi einstaklingum með hag-
kvæmum lánum, ef þeir vilja sjálfir ráðast í byggingu verbúða eða
endurbætur. Þá er og gert ráð fyrir ströngu eftirliti og ákveðnum
lágmarkskröfum til verbúða."
Frumvarpinu var að lokinni annarri umræðu vísað til sjávarút-
vegsmálanefndar, en eigi tekið til umræðu aftur og dagaði því uppi
á þinginu.
Ljóskastarar í skipurr.
Á þingum Alþýðusambands Íslands hafa verið samþykktar fjöl-
margar tillögur, sem miða að auknu öryggi sjómanna. Á 17. sam-
bandsþingi 1942 var skorað á stjórnarvöld landsins, skipaeftirlit rík-
isins og stéttarfélög sjómanna að beita sér fyrir framkvæmd örvggis-
mála, sem þá var orðin brýn nauðsyn. Þótt mikill hluti þeirra til-
lagna, sem þá kom fram, hafi fyrst og frernst miðazt við öryggi á
siglingaleiðum á ófriðartímum, varða margar þeirra öryggi sjó-
manna jafnt á friðartímum sem ófriðar. — Má segja, að á hverju
sambandsþingi síðan hafi komið fram tillögur og ályktanir, er miða
allar í þessa sömu átt.
Á Alþingi (vorþinginu) 1947 flutti Hermann Guðmundsson eftir-
farandi tillögu til þingsályktunar:
„Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina að nota heimild í lögum
um eftirlit með skipum og setja nú þegar reglugerð, er skyldar skipa-
eigendur að hafa góða og öfluga ljóskastara í skipum sfnum, og að
reglugerðin verði samin í samráði við Slysavarnafélag íslands."
Svohljóðandi greinargerð fylgdi tillögunni:
„Þáltill. þessi þarf í iauninni ekki skýringa við. Öllum hlýtur að
vera ljóst, hversu örlagaríkt það getur verið fyrir mannslífin á hafinu
60