Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2020, Síða 78
Aðalsteinn Eyþórsson og
Bergljót Soffía Kristjánsdóttir
Leikið orðtólum
Um málfræðinginn og
táknfræðinginn Þórberg Þórðarson
Inngangur
Gerðu svo vel og gakk í bæinn!
Gleðin er hér á boðstólum.
Eg hef verið löngum lagin
að leika mínum orðtólum.1
Þórbergur Þórðarson stundaði formlegt háskólanám í íslenskum bókmennt-
um, máli og sögu á árunum 1913–1918 þó að hann fengi aldrei bréf uppá
það.2 Meðan á náminu stóð, nánar tiltekið sumarið 1916, tók hann að safna
orðum úr mæltu íslensku máli og fékkst við slíka orðasöfnun fram á þriðja
áratuginn.3 Hann titlaði sig líka sem málfræðing og langt fram eftir 20. öld
má sjá þess dæmi að menn litu á hann sem málfræðing ekki síður en rithöf-
1 Þórbergur Þórðarson, „Viðauki I. Raulað við sjálfan sig“, Edda Þórbergs Þórðarsonar,
Reykjavík: Mál og menning, 1984, bls. 226. Tekið skal fram að vísan er lögð í munn
konu og er önnur af tveimur sem ber nafnið „Innboðsvísur“.
2 Um háskólanám Þórbergs, sjá Þórbergur Þórðarson, „Norrænunámið“, Meistarar
og lærisveinar eftir Stóra ævisögulega handritinu, Arngrímur Vídalín bjó til útgáfu,
Reykjavík: Forlagið, 2010, bls. 17–22; Soffía Auður Birgisdóttir, Ég skapa – þess vegna
er ég. Um skrif Þórbergs Þórðarsonar, Reykjavík: Opna, 2015, bls. 19, 150–162.
3 Guðrún Kvaran, „Söfnun Þórbergs Þórðarsonar úr mæltu máli“, Íslenskt mál og al-
menn málfræði 1/2006, bls. 161–184.
Ritið
2. tbl. 20. árg. 2020 (77-108)
Ritrýnd grein
© 2020 Ritið, tímarit Hug vísinda stofnunar
og höfundar greinarinnar
Útgefandi:
Hugvísinda stofnun Háskóla Íslands,
Sæmundargötu 2, 102 Reykjavík
Birtist á vefnum http://www.ritid.hi.is.
Tengiliður: ritið@hi.is
DOI:10.33112/ritid.20.2.3
Birt samkvæmt skilmálum
Creative Commons BY (4.0).