Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2020, Side 263
AuðuR AðAlSTEInSDóTTIR
262
Ú T D R Á T T u R
Pósthúmanískir draumar
– karlar, konur og náttúra í listamannaþríleik Gyrðis Elíassonar
Fyrri hluti greinarinnar rekur hvernig listamannaþríleikur Gyrðis Elíassonar tekst
á við tvær hefðir bókmennta sem gjarnan eru samtengdar; ákveðna tegund skrifa
um náttúruna annars vegar og hins vegar skrif um hlutskipti listamanna, nánar til-
tekið melankólískra snillinga. Bent er á að um karllega hefð er að ræða og færð rök
fyrir því að samskipti kynjanna gegni grundvallarhlutverki í bæði fagurfræðilegu og
umhverfispólitísku erindi bókanna. Í seinni hluta greinarinnar er fjallað áfram um
þessa vídd þríleiksins, ekki síst hugmyndir um póstnáttúru og pósthúmanisma sem
lesa má úr sumum verkum Gyrðis, í ljósi stóuspeki og út frá sjónarhorni femínískrar
vistrýni. kenningar um eignun og skaðlega tvíhyggju eru notaðar til að kanna að
hvaða leyti þá tilfinningu sögupersóna Gyrðis að þær hafi brugðist sem listamenn
megi rekja til þess að þeim tekst ekki að skapa tengingu við aðra. niðurstaðan sýnir
hversu stóru hlutverki krafa stóuspekinnar um að uppfylla skyldur sínar gagnvart
sjálfum sér, öðrum og umhverfinu gegnir í hinni margslungnu heimspekilegu lífssýn
er liggur að baki fagurfræðilegri og umhverfispólitískri yfirlýsingu þríleiksins.
Lykilorð: Femínísk vistrýni, fagurfræði, náttúra, kyn, umhverfishugvísindi, stóuspeki,
melankólía, snillingar, pósthúmanismi, póstnáttúra
A B S T R A C T
Posthuman Dreams
– men, women and nature in Gyrðir Elíasson’s artist trilogy
The first part of the article demonstrates that the artist trilogy of Gyrðir Elíasson
engages with two literary traditions that are often interconnected; a certain type of
nature writing on one hand and on the other hand works dealing with the plight of
the artist, more specifically the melancholy genius. These traditions are mostly male
oriented and I argue that gender is a fundamental element of the books’ aesthetic
and environmental agenda. The second part of the article continues to discuss this
aspect of the trilogy, not least ideas on post-nature and post-humanism that can be
found in some of Elíasson’s works, in light of stoicism and feminist ecocriticism.
The circles of Hierocles and theories of destructive dualism shed light on how Elías-
son’s protagonists’ feeling of having failed as artists can be attributed to their failure