Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2023, Qupperneq 66
KVIðRISTARINN Í KAUPMANNAHÖFN
71
lok 19. aldar og upphafi þeirrar tuttugustu var algengt að ræða einfaldlega um
kviðristu-morð (e. ripper-murder) sem vísun í voðaverk hins goðsagnakennda Jack
the Ripper eða Kobba kviðristu.11
Öll þau hugtök sem hér hafa verið nefnd hafa ýmist of víða eða þrönga skír-
skotun. Þau geta átt við um einstaka raðmorðingja en ekki alla og leiddi sú stað-
reynd Ressler í að finna nýtt hugtak. Hann var staddur á ráðstefnu á Englandi
þar sem rætt var um glæpi sem gerðust í röðum svo sem íkveikjur og nauðg-
anir. Þetta minnti Ressler á áðurnefndar framhaldsmyndir, Serial Adventures, sem
lokkuðu ungt fólk í kvikmyndahús viku eftir viku sökum skorts á fullnægjandi
endi (e. cliff hanger) sem þó var gífurlega spennandi. Ressler dró þá ályktun að
morðingjarnir sem hann var að rannsaka lifðu fyrir sams konar spennu og bíó-
gestirnir, að hvert morð væri ekki ósvipað þætti í framhaldsmynd. Morðinginn
væri þannig drifinn áfram af fantasíu um morð sem hann reyndi að fullkomna
án árangurs. Ófullnægjan skapaði þörf fyrir ný og ný morð eða þar til fantasía
viðkomandi næði einhvers konar lausn eða fullkomnun. Það myndi þó líklegast
aldrei verða að veruleika og því héldi morðinginn áfram að drepa, fremja morð í
röð eða seríu, sem væri raunar endalaus, myndi ekki stöðvast fyrr enn við andlát
viðkomandi eða handtöku.12
Útskýring Resslers er í marga staði áhugaverð og gefur vissa mynd af sálfræði
raðmorðingja. Af henni að dæma er nokkuð ljóst að sá sem myrðir ítrekað af
hvötum sem tengjast persónulegri fantasíu og þráhyggju er frábrugðinn þeim
sem fremja einstök morð af stundarbrjálæði, afbrýðissemi, áhrifum fíkniefna eða
af gáleysi svo eitthvað sé nefnt.13 Í afbrotafræðum er jafnan miðað við einstak-
ling sem myrðir í það minnsta þrisvar sinnum með hléum á milli sem kölluð eru
tilfinningalegur kælitími (e. emotional colling of period) og gefa til kynna að einhvers
konar umhugsun eigi sér stað hjá geranda eftir hvert morð. Þetta er skilgreining
sem alríkislögreglan í Bandaríkjunum þróaði á áttunda áratug síðustu aldar og
studdist lengi við. Árið 2005 uppfærði hún síðan skilgreiningu sína, lækkaði lág-
sínum tíma til þess að lýsa enska orðinu „stranger“ yfir þann sem er ókunnugur. Arn-
hildur Hálfdánardóttir, „Orðið ókunningi „gjöf til þjóðarinnar““, Fréttavefur RÚV, 16.
nóvember 2018, sótt 14. apríl 2023 af https://www.ruv.is/frettir/innlent/ordid-okunn-
ingi-gjof-til-thjodarinnar.
11 David Schmid, Natural Born Celebrities. Serial Killers in American Culture, bls. 68–70.
12 Robert Ressler og Tom Shachtman, Whoever Fights Monsters, New York: St. Martin’s Pa-
perbacks, 1992, bls. 32–33.
13 Þó eru til dæmi um einstaklinga sem falla undir skilgreininguna og myrða fórnarlömb
sín undir kringumstæðum sem þessum og þar sem ástæður hvers morðs eru jafnvel mis-
munandi. Sjá Katherine Ramsland, Inside the Minds of Serial Killers, Westport, Connecti-
cut og London: Praeger Publishers, 2006, bls. xi–xii.