Úrval - 01.02.1946, Blaðsíða 26
24
trRVAL
stökum aðferðum, sem sálfræð-
ingar ráðleggja. Þetta er ekki
nein leiðinleg sjúkraleikfimi,
heldur hrein og bein íþrótt, sem
skapar okkur aukna ánægju í
daglegu lífi.
Ein af aðferðunum, sem sál-
fræðingar mæla með til þess að
efla ímyndunaraflið, er kennd
við Harry A. Overstreet, pró-
fessor. Horfðu á einhvern venju-
legan hlut eins og hurðarhún eða
hálsbindi. Spurðu sjálfan þig:
„Verður þetta að vera svona?“
Það er alveg sama, hve svörin
eru bjánaleg í fyrstu. Þér fer
fram með æfingunni.
Fyrir mörgum árum var
kennari, sem var orðinn leiður
á því að þurfa alltaf að vera að
dýfa pennanum í blekbyttuna.
Hann spurði sjálfan sig: „Verð-
ur þetta að vera svona?“ Loks
kom svarið: „Nei, fylltu holt
pennaskaft með bleki, sem seitl-
ar niður í pennann, þá getur þú
skrifað þúsund orð viðstöðu-
laust!“ Lindarpenninn varð til
sökum þessarar andlegu æfing-
ar.
En það skiptir engu máli, þó
að þú finnir ekkert upp. Þú ert
aðeins að reyna að skapa þér
skemmtilegra viðhorf til lífsins,
ný augu, svo að þú getir litið
vandamáls daglegs lífs af meiri
skilningi.
Við deyðum of oft veikbyggða
brumknappa vaxandi ímyndun-
arafls með frostnæðingi „heil-
brigðrar skynsemi"; við rekum
okkuráþað,að fyrstu hugmynd-
ir okkar eru „vitleysa" og leggj-
um þá árar í bát. Þetta er ekki
rétt. Robert S. Woodworth, pró-
fessor, segir: „Gefið ímyndun-
araflinu lausan tauminn og
gagnrýnið á eftir.“ Okkur þarf
að lærast á ný að láta hug-
myndaflug okkar leika lausum
hala eins og í bernsku, og njóta
unaðarins, sem því er samfara.
Darv/in var vanur að stytta
sér stundir við leik, sem hann
nefndi: Tilraunir heimskingj-
ans. Láttu huga þinn glíma við
svo eríiða þraut, að honum of-
bjóði. Með því sópar þú burtu
ryki hverdagsleikans úr huga
þínum og opnar skapandi
ímyndunarafli þínu leiðina;
láttu það brjótast fram, án þess
að setja því þær skorður, sem
siður er. „Hugarflug hefir leyst
mörg vandamál, sem kerfis-
bundin hugsun hafði gefizt upp
við. Á meðan hugur ísaks Sing-
ers var bundin við þá hugmynd,
að augað á nálinni ætti alltaf
að vera á gildari endanum, varð