Úrval - 01.02.1946, Blaðsíða 130
128
ÚRVAL
skjaldsveinn hans fóru nótt eina
yfir til varðflokks Fílista í
gegn um klif og „var sinn ham-
arinn hvoru meginn; hét annar
Bózez, en hinn Sene.“ Þeir klifr-
uðu upp á klettótta hæðina
þangað til þeir komu að litlu
svæði, „einu dagplægi lands.“
Þá vöknuðu Fílistarnir, héldu
aðþeir væru umkringdir af herj-
urn Sáls, og lögðu á flótta. Því-
næst lagði Sál til atlögu með
allan her sinn og „þannig veitti
Jahve fsrael sigur á þeim degi.“
Majórinn hugsaði rneð sér:
„Þetta klif, þessir tveir hamrar,
og þetta „eina dagplægi lands“
er sennilega enn með sömu um-
merkjum.“ Hann vakti hers-
höfðingjann, og þeir lásu yfir
söguna. Njósnarar voru sendir
út og fimdu þeir klifið og voru
örfáir Tyrkir þar til varnar.
Hamrar voru til beggja handa
— bersýnilega Bózez og Sene —
og hærra uppi stafaði tungls-
Ijósið á lítinn sléttan flöt.
Hershöfðinginn ákvað nú
samstundis að breyta um til-
högun árásarinnar. f stað þess
að senda fram allt herfylkið,
sendi hann eina herdeild upp í
klifið í skjóli næturinnar. Tyrk-
nesku varðmennirnir voru fljót-
lega yfirbugaðir, og flokkurinn
hélt áfram upp hæðina, og rétt
fyrir dögun var hann kominn á
lítinn, sléttan flöt. Tyrkimir
vöknuðu, héldu að þeir væru
umkringdir af herjum Allenbys
og lögðu á flótta. Allir Tyrkir
í Mikmas voru drepnir eða tekn-
ir til fanga þennan dag.
Og þannig skeði það að
brezkur hershöfðingi endurtók
mörg þúsund ára gamalt her-
bragð Sáls og Jónatans, og með
sama árangri.
URVAL tímaritsgreina í samþjöppuðu formi.
Ritstjóri Gisli Ólafsson, afgreiðsla Tjamargötu 4, Pósthólf 365. —
Þeir, sem vilja gerast áskrifendur, eru beðnir að snúa sér til afgreiðsl-
unnar. Ætlazt er til, að hvert hefti sé greitt við móttöku. Á hinn
bóginn fylgja áskriftinni engar skuldbindingar um að kaupa tímaritið
fyrirfram ákveðinn tíma, en með því að gerast áskrifandi tryggið þér
yður að fá timaritið sent til yðar undir eins og það kemur út. Úrval
er sent til allra bóksala á landinu og getur hver og einn gerzt áskrif-
andi hjá nsesta bóksala.
ÚTGEFANDI : STEINDÓRSPKEN T H.F.