Úrval - 01.02.1946, Blaðsíða 89

Úrval - 01.02.1946, Blaðsíða 89
BÖRN GUÐS 8 T biblíutilvitnunum og fomyrðum, virt- ist alls ekki vera hans eigin. Það var eins og hann væri að hlusta á ókunna rödd og hann varð mjög undrandi. Honum virtist hann standa hjá og horfa á sjálfan sig krjúpa i laufinu. Eftir skamma stund þagnaði hann og hugur hans tók að sveima. Hann hná niður á jörðina og augnalokin huldu skelfinguna í augum hans. Hann sá fyrst djarfa fyrir birtu langt úti í geimnum: hún stækkaði og steig niður í breiðum geisla með ægilegum ljóma. Síðan birtust tvær verur leifturhratt i hinum volduga geisla. Það voru Faðirinn og Sonur- inn, og þeir komu báðir í ljóma dýrð- ar sinnar. Sonurinn talaði. Hann lýsti yfir, að allar trúarjátningar heimsins væru viðurstyggilegar fjrrir sínu augliti, og að þeir sem þær játuðu bæru svip guðrækninnar, en væru engu að síð- ur syndum spilltir. Ennfremur sagði hann, að ný kirkja yrði stofnuð und- ir forustu nýs spámanns. Röddin f jar- lægðist og bergmálaði sem fagur hljóðfærasláttur og Ijósið hvarf hægt og hægt. Þegar Jói raknaði við, reyndi hann að hreyfa sig, en var um stund svo máttvana, að hann gat hvorki hrært legg né lið. Hann varð undrandi á því að vera hér mitt í fuglakliðnum og finna ilm- andi blæinn ofan úr hæðunum í vestri. Þegar hann mundi eftir Föðumum og Syninum, fór hann að reyna að skilja það, sem fyrir hann hafði borið. Síðan stóð hann á fætur, veikur og máttfarinn og hélt heim til bjálkakof- ans, sem faðir hans hafði byggt í rjóðri. Móðir hans fann, að ekki var allt með felldu. „Hvað gengur að þér, drengur minn?“ spurði hún. Honum gramdist við hana. Bæði Faðirinn og Sonurinn höfðu talað við hann, en líklega mundi hún segja eins og Babtistapresturinn, að engir sæju sýnir nú á dögum. „Láttu mig vera,“ sagði hann. „En hvað hefir komið fyrir?" Hann valdi orðin hægt, er hamr svaraði: „Ég hef komizt að þvf, að mót- mælendatrú er ekki rétt. Ég var að- tala við guð áðan.“ „Þú varst . . . hvað ertu að segja ?“ „Sg sá sýn. Ég talaði við Jesú. En þú,“ sagði hann og horfði á hana blá- um ásökunaraugum, „mundir aldrei trúa því. Syndugur heimur mun aldrei trúa. En ég sver það er sann- leikur." „Góði minn, auðvitað trúi ég." Hún titraði og horfði á hann kviðafull. „Talaði blessaður Herrann sjálfur við þig ?“ „Já, hann talaði við mig,“ sagði- Jósep og skalf líka. „Ég fór út til að biðja og spyrja ráða.“ Hann hugsaði sig um andartak og fór síðan að tala á biblíumáli eins og hann hafði gert frá bamæsku, þegar hann var ein- samall. „Það er sagt í Jakobsbréfinu, að ef einhvem skortir vizku, þá skuli. hann leita til guðs. Ég bað og sjá, Drottinn og Sonurinn birtust mér í miklu Ijósi og Sonurinn mælti tii min og sagði: „Sannlega, sannlega segi ég þér, þjónn minn Jósep, að ný kirkja mun verða stofnuð á þessum síðustu dög- um og þú munt verða spámaður: minn." Hann þagnaði aftur og vissi ekki nákvæmlega, hvort Herrann hafði sagt þetta. „Góði minn, drengurinn minn,“ hrópaði hún og snerti hann með lotn-. ingu. „Ég tek þér vara," sagði hann há- tíðlega „að spottarar munu segja það> lýgi.“ „En þú segir ekki ósatt! Ö, það er satt, satt! Guð hefir sýnt tákn." Hún fór að leita að manni sínum, gagntekin af gleði; og Jósep gekk út úr húsinu með nýju stolti í bættu tötmnum sínum. Hann vildi vera einn til að rannsaka hjarta sitt. Hann braut heilann um það, hvort faðir hans mundi efast.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Úrval

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.