Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1976, Page 88

Andvari - 01.01.1976, Page 88
86 FINNBOGI GUÐMUNDSSON andvaiii átti hvorki bakhjall auðs né ættarfylgis, tók við forystu smáþjóðar, sem var hnípin og illa leikin, sífellt þurfti að tala kjark í, hvetja og hrýna. Einmitt með hinum smæstu þjóðum er afburðamönnum að því skapi torvelt að njóta sín sem það einatt virtist auðsótt að vaða þar uppi fyrir miðlungsmenn. Látum oss viðurkenna hvort tveggja, að Jón hafi verið uppi á réttum tíma og rétti maðurinn á þeim tíma. Eitt er víst, að þar eignuðust íslending- ar mann, sem lánaðist, — varð bæði gæfumaður sjálfur og gæfa þjóð sinni. Vér getum ekki skilið, hvers virði þetta var fyrir hugsunarhátt þeirra og við- horf, ef aðeins er horft á samtíð hans og sýnileg afrek. Til þess verður að hafa alla sögu Islands í hálfa sjöundu öld í huga. Það er varla ofmælt, að allt frá því er Jón Loftsson í Odda leið, hafi engum íslenzkum þjóðskör- ungi orðið svipaðs gengis auðið. Þetta mætti rekja öld eftir öld og með því að telja hina nafnkunnustu menn, hvern af öðrum. Alls staðar ber skugga íslands óhamingju á ævi þeirra, sem máttu þykja kjörnastir forvígismenn. Sumir þekktu ekki vitjunartíma sinn, misskildu köllun sína og hlutverk. Sumir lutu í lægra haldi fyrir ofurefli, aðstæðum og lífskjörum, voru beygð- ir eða brotnir. Sumum var svipt burt af duttlungum örlaganna, áður en þeir voru fullþroskaðir eða fullreyndir. En Jón fékk að lifa, þroskast, starfa, beita sér af alefli, vinna ótvíræða sigra. Engir örðugleikar buguðu kjark hans, hann örvænti aldrei, smækkaði hvorki sjálfur né slakaði á kröfum sínum til þjóðarinnar og fyrir þjóðina, þótt hann kæmi ekki öllu fram. Hann skildi löndum sínum eftir öfölskvaðar framtíðarhugsjónir, þar sem hina raunverulegu framsókn þraut. Það var orðið annað og meira að vera Islendingur, þegar hann hafði runnið skeið sitt á enda, en það var, þegar hann kom til sögunnar." Sigurður annaðist löngu síðar, 1961, á vegurn Almenna bókafélagsins um útgáfu 30 kvæða, er flest höfðu verið flutt Jóni Sigurðssyni eða sungin fyrir minni hans í veizlum, og nefndist hún Idirðskáld Jóns Sigurðssonar. Sigurður ritar formála, þar sem hann reifar kvæðin í heild, lýsir tildrögum og atvikum og viðhorfum skáldanna, 12 alls, til Jóns og stundum hvers til annars. Loks ritaði Sigurður sérstaka grein um Jón og birti í Afmælisriti Jóns Helgasonar 1969. Olöf Jónsdóttir lauk stúdentsprófi við Menntaskólann í Reykjavík
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.