Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1976, Page 144

Andvari - 01.01.1976, Page 144
142 ANDRÉS BJÖRNSSON ANDVARI en eilíf velferð barnsins í veði, ef það kæmist ekki í kristinna manna tölu. Fjali er vestan undir Fellinu miðju, og hefur Helgi bóndi borið reifastrangann aillanga leið, en komið við á Kappastöðum, sem þá hét Kampstaðir, og fengið bóndann þar tii samfyigdar, og gerðist hann skírnar- vottur. Séra 'Bjami Páisson skírði Sölva í Feilskirkju, og voru skírnarvottar prests- frúin sjálf, maddama Ingibjörg Bjarna- dóttir, Jón Jónsson bóndi Kampstöðum og Jón Guðmundsson vinnumaður í Felli. Um Helga föður Sölva segir Andrés: „Helgi faðir hans þótti vera mjög undar- legur maður, og álitu því margir, að Söivi hefði sótt sérvizku sína til hans. Það sögðu kunnugir menn, að oft hefði Helgi verið búinn að leggja kindur sínar niður við trog, en þá sýndust honum þær vera svo fallegar, að hann tímdi ekki að skcra þær. Drápust þær svo úr hor á veturna. Á sumrum, þegar karl og kerling, foreldr- ar Sölva, gengu að heyvinnu, tóku þau það ráð, þegar drengurinn var tvævetur, að binda hann við rúmstokkinn, og þar létu þau hann eiga sig allan daginn. Nærri má geta, hvemig piltinum hefur liðið, þegar enginn varð til þess að hugga hann, þótt hann grenjaði úr sér öll hljóð. En með því enn lifði eftir í kolunum af gamalli hjátrú þar í útsveitum, álitu margir, að vondar vættir hefðu náð tang- arhaldi á drengnum í þessari einveru, og eignuðu þeim einræningsskap hans og lánleysi síðar meir.“ Foreldrar Sölva fluttust að Keldurn, bæ norðan undir Fellinu 1821, og þar dó Helgi faðir hans úr uppdráttarsýki 6. des- ember 1824. Sölvi hefur því ekki lengi haft af honum að segja. Móðir Sölva gift- ist aftur og hokraði í Sléttuhlíð til 1828, en fluttist þá með Jóni Ulugasyni, seinni manni sinum, inn í Deildardal ásamt bömum sínum tveimur af fyrra hjóna- bandi og ungri dóttur þeirra Jóns. Ingi- ríður dó á Kambi í Deildardal 4. ágúst 1834. Ári eftir lát Ingiríðar, móður Sölva, er hann skráður léttapiltur á Undhóli í Ós- landshlíð 15 vetra gamall, en vera má, að hann hafi skilizt við móður sína áður en hún dó. Tveimur árurn síðar hefst svo þáttur Björns Þórðarsonar á Yzta-Hóli (Björns á Skálá) og afskipti hans af Sölva. Um uppvöxt Sölva segir Andrés svo í grein sinni: „Þrátt fyrir þessa illu aðbúð óx Sölvi upp og varð snemma bæði stór og sterk- ur, en jafnframt því óbilgjarn og sérvitur. Gáfur hafði hann nógar, og snemma varð hann góður skrifari, þótt slíkt væri ekki títt í þá daga. Hann var mjög hneigður til þess að draga upp rósir og ýmsar myndir, og hafði hann þó ekki góð áhöld til þess. Honum var mjög annt um mál- verk sín, og hann hefndi þess grimmi- lega, cf einhver skemmdi þau. Einu sinni hafði hann til dæmis málað rósir nokkrar á grápappír með fjaðrapenna og sótbleki. En köttur nokkur gálaus og illa uppalinn hafði ekki meiri smekk fyrir þessu lista- verki en svo, að hann laumaðist upp á hilluna, þar sem Sölvi geymdi rósirnar, og dreit á snilldarverkið. Varð þá Sölvi svo reiður, að hann hengdi köttinn. Latur var Sölvi til flestra verka, en þegar hann nennti að taka til starfa, var sem hvert verk léki í höndum hans. Aftur á móti gekk stirt að kenna honum kristin fræði. Var honum komið fyrir hjá Birni hrepp- stjóra Þórðarsyni á Skálá í Sléttuhlíð, til þess að klínt yrði á hann fermingu. Þar gjörði hann ýms strákapör, en jafnan stóð honum þó beygur af Birni, og illa var honum við hann. Það sést meðal ann- ars á því, að hann málaði einu sinni Björn og djöfulinn báða saman. Var djöfsi þar að gefa Bimi að drekka úr könnu.1'
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.