Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1976, Page 157

Andvari - 01.01.1976, Page 157
ANDVARI ÚR BRÉFUM RASMUSAR RASKS 155 á ég svo sem að gera aftur þangað? Á ég í hvert sinn, er ég sem einhverja rit- gerð, að svelta meðan á verkinu stendur, en síðan betla mér fé hjá stjórninni til þess að fá einhvern til þess að taka það að sér og vera svo jafnsnauður eftir sem áður? Það hvarflar stundum enn að mér, hvort ekki sé skyldara að lifa athafnasömu, ágætu og heiðarlegu lífi, þótt með óvini sé, en svelta og sólunda tíma sínum og kröftum hjá vini sínum. Forsjónin, ef hún er þá nokkur, virðist einna sízt ætla, að sá sé tilgangur lífsins. Hver missa væri svo sem föðurlandinu í mér, sem í þokkabót er bónda- durgur í ættir fram!1) En nú er nóg komið um þetta og meira en nóg. Prófessorinn sér af þessu, hvernig ég lít á sakirnar. Eg veit harla vel, að það eru tvær hliðar á hverju máli, og menn geta, ef þeim sýnist svo, skemmt sér við að skoða þetta mál eins og annað frá verri hliðinni, — ég fyrirlít slíkan hugsunarhátt, því að ég þykist hafa hagað mér, svo sem réttur, skylda og nauðsyn buðu mér! En ég hef fengið svo margar hörmulegar og að sumu leyti óheillavænlegar fregnir frá föður- landinu, síðan ég fór þaðan, að mig langar í rauninni ekki mikið til Kaup- mannahafnar, þar sem ég hef átt svo margar áhyggjustundir, en fáa virkilega glaða og hamingjusama daga.“ Bjarni Thorsteinsson vann um þessar mundir í Rentukammerinu í Kaup- mannahöfn og fylgdist með átökum Rasks vinar síns við hina dönsku lærdóms- menn. Bjarni skrifar Rask í ágústmánuði 1817 og segir þar m. a.: „Ég var í gærdag uppá Turni að snudda í skruddunum hans Árna Magnús- sonar, og vegna þess svo lengi er síðan ég hefi frá þér heyrt, spurði ég Profess. Nyerup, svosem í fornfræða skyni, hvört nokkuð heyrðist handan fyrir Sundið. Hann kvaðst heyrt hafa, að þú létir ganga 7 pressur í Stokkhólmi og prenta bækur í 7 málum. Ég, sem valla skil eða skrifa bæriliga eitt eða tvö mál, — féll í forundran yfir, hvað mikið guð hefir í þig látið á svo stuttum tíma, og gleður það mig þarhjá, að þeir gullhálsarnir meðal Svía nú geta séð, að þeir í nokkrum vísindum eiga jafningja hér í landi. Mér fórst annars, þegar ég heyrði þessa fregn, eins og bændum á Járngerðarstaðaþingi, þegar ég 1815 var þar staddur. Þeir spurðu mig nk, hvað Silfurverð væri? og eftir að ég hafði útlistað það fyrir þeim, eftir því sem ég gat bezt, spurðu þeir mig ennframar, hvað lengi á þetta Silfurverð að standa? En af því ég ekki gat gefið greiniligt 1) Faðir minn var annars raunar ekki tóndi, en það skiptir ekki máli, hann bjó í sveit og var almúgamaður eins og fólk hans allt, ég skammast min ekki fyrir hann.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.