Andvari - 01.01.2003, Page 29
andvari
HANNIBAL VALDIMARSSON
27
gamla Bamaskólahúsið. „Var sá vel sóttur og tókst prýðilega“ segir í
frétt í Skutli en ekki kemur fram hverjir töluðu.24 Finnur Jónsson var í
Bolungarvík því hann var í framboði í Norður-ísafjarðarsýslu og gott
ef Vilmundur var ekki þar líka. Það vantaði því ræðumenn. Haraldur
mun þá hafa leitað til Hannibals um að taka til máls á fundinum og má
vera að málflutningur hans á kennaraþinginu hafi gefið ástæðu til að
ætla að hann væri hliðhollur jafnaðarmönnum. Hannibal Valdimarsson
hélt sína fyrstu opinberu, pólitísku ræðu þann 8. júlí 1927 og má segja
að þá hæfist stjórnmálaferill sem stóð í hálfa öld.25 Kosningin á ísafirði
fór þannig að Haraldur Guðmundsson var kjörinn þingmaður með
miklum mun.
Hannibal var hinsvegar ekki kominn vestur til að sinna stjóm-
málum. Það var annað sem tók hug hans á þessum tíma.
Barnakennsla
Kensla. Undirritaður tekur böm í stöfun á komandi vetri (frá 1. október) og
veitir tilsögn í öllum námsgreinum bamaskólans. Einnig kenni ég dönsku og
e.t.v. ensku þeim, er þess óska.
Hannibal Valdimarsson (Pósthúsinu, uppi.)26
Þannig hljóðaði auglýsing sem birtist í bæjarblöðunum á ísafirði í sept-
ember 1927. Hannibal ákvað að stofna til einkaskóla á ísafirði fyrir
böm undir skólaskyldualdri. Skólaskylda miðaðist í þá daga við 10-14
ára aldur. Bamaskóli var starfræktur á ísafirði frá 1874, en ekki áttu öll
böm í kaupstaðnum kost á fræðslu þar, þó að skólinn starfrækti svo-
kallaða stöfunardeild fyrir 8-10 ára böm. Stunduðu ýmsir einka-
kennslu í bænum á þessum árum fyrir böm undir skólaskyldualdri og
var það kallað smábamafræðsla. Þar ákvað Hannibal að bera niður.
Kennslan gekk vel, raunar svo vel að Hannibal þurfti að ráða aðstoð-
armann til að sinna öllum þeim bömum sem honum vom falin þennan
vetur.27
Hannibal ritar greinar um skólamál í bæjarblöðin um veturinn og er
mikið niðri fyrir.28 Niðurstaða hans var að ástandið væri ískyggilegt og
ástæðan lá í skipulagi þjóðfélagsins sem bitnaði á þeim sem minnst
mættu sín:
Það er því þjóðfélagið sem hefir skyldum að gegna gagnvart þessum
bömum, sem haldið er niðri í myrkri fáfræðinnar, og það verður því að bera