Andvari

Árgangur

Andvari - 01.01.2003, Síða 156

Andvari - 01.01.2003, Síða 156
154 ÞORSTEINN ÞORSTEINSSON ANDVARI þar sem ég þekki eitthvað til bókmenntagagnrýni og bókmenntasögu - einkum á ensku, þýsku og frönsku - tel ég að þættir „Heljar“ væru hvergi taldir til prósaljóða - núorðið að minnstakosti. I ættlandi bókmenntagreinar- innar, Frakklandi, hafa verið skrifuð um hana tvö höfuðrit.9 I báðum er lögð rík áhersla á að skilgreina einkenni hennar og afmarka hana - frá ljóðrænum prósa annarsvegar og stuttum sögum (anekdótum, atvikssögum) hinsvegar. Einu andmælin gegn ofangreindri flokkun sem ég man eftir í svip, þó fleiri kunni að hafa látið í ljósi svipaða skoðun, eru eftirfarandi orð Einars Braga: „Hitt finnst mér nú orka tvímælis, að Hel geti talizt ljóðabrot í lausu máli“.10 Og hann bætir við: „Ljóðskáld yrkja ekki ljóð vegna þess, að þau hafi ekki tíma til að rita sögu, heldur af því að þau skynja mannlífið með öðrum hætti en sagnaskáld: í ljóðmyndum en ekki sem sögu, rás ytri atvika og innri þró- unar.“ Ég er sammála þessu mati, ljóð eru annað en söguþættir þó ljóðrænir séu. Mjög skýr eðlismunur er á textum einsog í „Hel“ og prósaljóðum Sig- fúsar Daðasonar eða Stefáns Harðar Grímssonar. Ég leyfi mér að kalla fyrri tegundina ljóðrænan prósa (Ijóðræna prósaþætti) til aðgreiningar frá prósa- ljóðum hinna síðari. Textar Jakobs Smára í „Ur djúpinu“ eru einnig fjarska ólíkir prósaljóðum tvímenninganna, en þeir eru sjálfstæðir, skýrt afmarkaðir hver frá öðrum, flestir stuttir, og mér sýnist eðlilegt að telja þá Ijóð frekar en þætti. Hvað þá um Flugur Jóns Thoroddsen sem út komu árið 1922 og sam- komulag virðist um að kalla fyrstu bók með prósaljóðum á íslensku? Einir sjö bókmenntafræðingar að minnstakosti hafa tjáð sig í þá veru." Sjálfur tal- aði höfundurinn ekki um Ijóð heldur „flugur“. Orðalag hans í „Formála“ gæti þó bent til að hann hafi litið á þær sem ljóð: „Þakkið þið guði fyrir, að ég færði ykkur hvorki í lífstykki rímsins né vaðmálspils sögunnar." Svo þarf samt ekki að vera því hann notaði orðið víðar um ,hugmyndir‘ sem hann fann þörf hjá sér til að festa á blað. Þannig segir hann vini sínum frá grein sem hann hafi skrifað: Ég hef varla frið fyrir pólitískum flugum, þær ásækja mig, og heili minn er því miður eins og flugnapappír. Ég sé ekkert annað ráð vænna, en að fara að losa um þær elztu og reyndustu og lofa þeim að fljúga.12 Reyndar notaði hann heitið ,ljóð í óbundnu máli‘ í ritdómi um ljóð annars manns. Það heiti hefur sennilega verið algengast á þessum árum, og um þá tegund texta sem ég kýs að kalla Ijóðræna prósaþætti.13 Orðalagið í ritdóm- inum er ákaflega fróðlegt: Ljóð í óbundnu máli. Algjörlega laust við höfuðgalla þessarar skáldskapartegundar: orðatildur, væmni, tilgerð og hugleiðingar. Bendir það á góðan smekk höfundar.14
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168
Síða 169
Síða 170
Síða 171
Síða 172

x

Andvari

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.