Eimreiðin - 01.01.1933, Blaðsíða 63
EIMREIÐIN
ÞÁTTUR ÚR ALHEIMSLÍFFRÆÐI
43
se9Ía oss af högum framliðinna, þá eru þeir að fræða oss um
lífið á sfjörnunum. En því miður hefur sú fræðsla þó altaf
verið mjög ófullkomin, og einmitf fyrst og fremst af því,
að menn hafa ekki áttað sig á þessum undirstöðuatriðum,
Sarn hér hefur verið vikið á. En þegar það verður gert, má
búast við miklum og furðulegum framförum, sem þýðingar-
^neiri munu reynast fyrir allan hag mannkynsins en nokkrar,
sem orðið hafa áður.
II.
Ein af allrabeztu framlífslýsingum, sem ég hef kynst, heitir
Gone West, og er eftir ]. S. M. Ward, mann sem gæddur
hefur verið mjög merkilegum miðilshæfileikum. Segir Ward í
bók þessari af framæfi bróður síns, sem féll í ófriðnum mikla
af því er leitt heiti bókarinnar — og einnig tengdaföður,
°9 ennfremur liðsforingja, sem þessir tveir höfðu kynst eftir
óauðann. Hafði foringi þessi verið hinn mesti hrotti og ill
Verk unnið, en þó var það meir ofsi og óbilgirni, sem stjórnað
hafði athöfnum hans, en grimd og illgirni; og þessvegna er það,
þótt hann lendi í mjög illum stöðum eftir dauða sinn og
yerði margt mjög ilt að þola, þá dvelur hann þar ekki lengi
°9 fer eftir aðeins nokkur ár að komast uppávið og burt úr
sv° illum stöðum að heita megi helvíti. Og þá er það sem
3- S. M. Ward nær sambandi við hann fyrir tilstilli bróður
*ins og tengdaföður, og fær fréttir af ýmsu því, sem á daga
hans hefur drifið í hinum illu stöðum. Það sem hér skal sagt,
9erist í einu af hinum vægari eða vægustu vítum, og er þá
liðsforinginn kominn á framfaraleið, og það sem verst var, er
orðið langt að baki honum.
Liðsforinginn kemur í borg eina mikla, er stendur við
si°ra á, ljóta mjög og skoluga. Og sjálf er borgin hin leið-
asia yfir að líta, alstaðar rísa gnæfandi reykháfar, alstaðar
Verksmiðjur og vörugeymsluhús, en ófagrar og óhreinar götur
a roilli. Alstaðar er sót og óþverri. Iðandi mannfjöldi er á
ieið úr verksmiðjunum og í þær, og nemur liðsforinginn staðar
°9 spyr hvað fólk þetta sé að gera. Einn úr mannfjöldanum
Verður til að svara og segir: En vinna, eða hvað heldurðu?
Liðsforinginn spyr þá hvað þeir geri við varninginn, sem þeir