Eimreiðin - 01.01.1933, Blaðsíða 62
42
ÞÁTTUR ÚR ALHEIMSLÍFFRÆÐI
EIMREIÐIN
(Principia Newtons). Og þá er ekki síður fróðlegt að minnast
þess hversu sannfærðir menn hafa verið um það, að efnin
í stjörnunum mundu menn aldrei geta rannsakað. Kvað svo
ramt að þessari sannfæringu, að einn af vitrustu mönnum
19. aldarinnar, heimspekingurinn Aug. Comte, sagði að eitt
það sem telja mætti alveg víst um framtíðina, væri þetta, að
efnafræðin mundi aldrei ná til stjarnanna. En þó liðu ekki
nema 12 ár þangað til Kirchhoff færði út svið vísindanna á
þenna stórkostlega hátt (spektralanalyse: brákönnun; spektr-
um: ljósbrá; spektroskop: brásjá).
Og nú, þó að menn hafi verið og séu flestir ennþá engu
síður ramlega sannfærðir um, að líffræðin muni aldrei ná til
stjarnanna en Comte var um, að aldrei mundi geta orðið um
alheims-efnafræði að ræða, þá er þó nú svo komið, að fundin
er aðferð til þess að rannsaka lífið á stjörnunum. Og líkt og
áður hefur borið við í sögu vísindanna, þá fanst þetta við
athuganir á sviði, sem fæstum mun hafa þótt vænlegt til þess-
konar uppgötvana. Það hefur sýnt sig, að draumlífið byggist
á nokkurskonar sambandsástandi, og að sambandsveran
— sem ég hef nefnt draumgjafa — er oftastnær íbúi annar-
ar stjörnu, og er áríðandi að menn láti sér skiljast, að hér
er enganveginn um tilgátu eina að ræða heldur um sannleik
leiddan í ljós. Mér dylst það nú að vísu ekki, að það er auð-
velt að sýna mér ofmetnað í þessu efni og segja að hér sé
aðeins um einhverjar ímyndanir mínar að ræða, en ekki vís-
indalegar uppgötvanir. En rangindi er slíkt, og þó að þau
bitni á mér fyrst, þá munu þau leita heim seinna meir. Því
að það er heimslögmál, að öll rangindi bitna að síðustu á
sjálfum þeim, sem fremja.
Það vantar nú minst á að 31 ár sé liðið síðan ég tók fyrir
að rannsaka eðli drauma, og er ég ekki sannfærðari um að
ég er til, en að það er í öllum aðalatriðum sannleikurinn,
sem ég flyt yður um það efni.
Það hefur ennfremur komið í ljós, að sambandsástand
(trance) miðilsins er náskylt svefninum, blátt áfram lítilsháttar
afbrigði hins vanalega (normala) svefns, og að sofandi miðill
segir oss frá draumum, sem í aðalatriði eru sama eðlis og
þeir sem alla menn dreymir; og þegar því miðlarnir eru að