Eimreiðin - 01.01.1933, Blaðsíða 56
36
KONAN Á KLETTINUM
EIMREIDIN
henni höndina og segir: — Vertu sæl, Hildur. — Hann ætlar
að segja eitthvað meira, en hættir við það.
Hún tekur fast og innilega í þessa stóru og sterklegu hönd
og segir aðeins þessi tvö orð: — Vertu sæll. — Hún getur
ekki sagt meira. Hann lítur djúpum augum á hana, svo fer
hann. En þessi augu þau brenna sig inn í vitund hennar.
Og þegar Steingrímur kemur heim, þá situr hún niðursokkin
í daprar hugsanir. — — —
Ennþá vantar í samhengi minninganna. — Næst kemur
lítið stúlkubarn með brosandi andlit. Það ber svip hennar
sjálfrar, þó ennið sé hátt og bjart, eins og á Steingrími. — —
Nú koma erfiðir tímar, sem bezt væri að hlaupa yfir. —
Steingrímur er atvinnulaus. —
Hann heldur þó áfram að yrkja, og stundum birtast kvæði
eða sögur eftir hann á prenti suður í Reykjavík. — Þær fá
mikið lof. — Henni finst hann gefa sig of mikið að þessu,
sem ekkert fæst fyrir.
Honum finst hún sjálfsagt ekkert vit hafa á slíkum hlutum
og vilja draga sig niður í andleysi og áhugaleysi.
Hann fer að vera mikið með kunningjum sínum í þorpinu,
og stundum spilar hann með þeim nóttina út. — — Þá situr
hún ein heima hjá litlu dóttur sinni og hugsar.-----Einstöku
sinnum detta henni í hug tvö dreymandi, sorgblandin augu.
— — ]á, svo er það ekki meira. Hún vefur barnið sitt að
sér með ástríki. — —
Þannig líða dagar og vikur, og síðan mánuðir og heilt ár.
Atvinna Steingríms er stopul. Nú hefur hún orðið að vinna í
fiskþvotti þar í þorpinu, til þess að hafa eitthvað að lifa af.
Oftast er Steingrímur góður við hana, nema stöku sinnum,
þegar hann kemur heim og er með víni. Vinir hans eru alt af
að telja hann á að fara og leita sér frægðar, en láta ekki
draga sig niður í fátækt og vesaldóm. — Hún finnur að hann
er smátt og smátt að fjarlægjast hana, þó hann ekki vilji við
það kannast, er hún talar um það við hann. — En einnig
það fjarlægir hann. — — Svona líður tíminn. — Og nú er
hún bara orðin tötraleg kona, sem vinnur fyrir sér með fisk-
þvotti og hreingerningum. En hann er maður, sem á háleitar
hugsjónir og skáldlegar tilfinningar.---------