Uppeldi og menntun - 01.01.1997, Page 17

Uppeldi og menntun - 01.01.1997, Page 17
RANNVEIG A. JÓHANNSDÓTTIR einskorðaðist ekki við móðurmál. Erfitt reyndist því að greina móðurmálið frá almennu uppeldisstarfi þar sem þetta tvennt tvinnast saman í öllu því sem gert er.3 Umfjöllunin einskorðast því ekki við móðurmálið. Afdráttarlaus afstaða kom fram í gögnunum til samstarfs milli leikskóla og grunnskóla og verður gerð grein fyrir henni í lokin. Fyrst verður sagt frá niðurstöðum úr leikskólunum og síðan grunnskólunum. Fjallað verður um hvort skólastigið sameiginlega nema ef niðurstöður eru ólíkar í skólunum þá verður þess sérstaklega getið. Gögnin eru viðamikil. Hér verða því dregin saman aðalatriði hverrar rannsóknarspurningar og eru beinar tilvitnanir í rannsóknargögn takmarkaðar (sjá nánar Rannveigu A. Jóhannsdóttur 1996, 4. kafla). Þjálfun móðurmáls í leikskóla Reifað verður hvernig móðurmál er þjálfað og hvaða þættir málsins koma einkum við sögu. Miðað er við frumþætti móðurmáls, tal, hlustun, lestur og ritun. Talmál - hlustun í ljós kom að talmálsþjálfun var mest áberandi í leikskólunum. Málnotkun barnanna var við fjölbreyttar aðstæður sem samtímis reyndi á marga eiginleika málsins, s.s. málfræði (t.d. beygingar orða, eintala, fleirtala), orðaforða, merkingu orða og hug- taka, að byggja upp atburðarás í frásögn og að hlusta. Þessir þættir komu daglega fram í meira eða minna mæli í samræðum við börnin, við máltíðir og önnur störf. Einnig í sérstakri málþjálfun sem í boði var í leikskóla 1 og þegar spilað var bingó eða á spil og þegar sögur voru lesnar fyrir börnin. Ég myndi segja að þjálfun móðurmálsins væri að auka málskilning og tjáningu með ólíkum hætti og þetta er það sem kemur inn í allt starf... (Leikskólastjóri 1) - ...að gefa sér tíma til að hlusta á það sem þau segja. Fylgjast með þessum frétta- flutningi sem alltaf er ígangi ... ef við notum gott mál og nefnum alla hluti sem þau eru að umgangast þá hlýtur það að skila einhverju ... það er mikið atriði að við séum meðvituð um hvernig við notum málið. (Leikskólakennari 1) Talmál var markvisst æft undir stjórn leikskólakennarans. Farið var í ýmsa málörv- unarleiki, farið saman með vísur og þulur, sungið ásamt því að börnin sögðu sjálf frá. Þau fá tækifæri til að segja frá reynslu sinni. Ef við vitum að það hafi verið eitthvað sérstakt þá hvetjum við þau mjög mikið til að segja frá því og stundum höfum við það markvisst einu sinni í viku. (Leikskólastjóri 2) Talmálið þjálfaðist í margs konar skipulagðri starfsemi þar sem börnin voru í hóp- um með fullorðnum. Þessi háttur studdi fjölbreytta málþjálfun og stuðlaði með ein- um eða öðrum hætti að meðvitaðri málkennd barnanna, að þau notuðu málið sem 3 Vísað er í íslenska orðabók Máls og menningar frá 1992. Þar kemur fram að með uppeldi er átt við aðferðir og venjur f uppfóstran bama og unglinga. Uppeldisfræði á við fræði um uppeldi og menntun sem er kennslufræði eða „pedagogy" (skv. Orðaskrá úr uppeldis- og sálarfræði frá 1986). Uppeldisfræði er veigamikill þáttur í námi leikskólakennara og grunnskólakennara. 15
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.