Uppeldi og menntun - 01.01.1997, Page 135
ÁRNI SIGURBJARNARSON
anda sem vantar alla undirstöðuþjálfun fyrir hljóðfæranám. Með því að þróa að-
ferðir til hópkennslu byrjenda í hljóðfæranámi er í fyrsta skipti verið að gera það að
raunhæfum möguleika að allir geti átt kost á hljóðfæranámi og að tónlistarnám
yngri barna geti komið sem viðbótartími inn á samfellda stundaskrá barna í fyrstu
bekkjum grunnskóla. Með markvissri samvinnu þessara þriggja stofnana verður
hinn „hefðbundni" tónlistarforskóli Tónlistarskólans úr sögunni þar sem grunn-
skólinn og leikskólinn taka við þeim verkefnum af Tónlistarskólanum og Tónlistar-
skólinn getur betur beint kröftum sínum og þekkingu að hljóðfæranáminu.
c) Sú bylting sem orðið hefur í tækni til að tölvuvinna tónlist er markvisst notuð
við gerð samþætts kennsluefnis. Þetta skapar alveg nýja möguleika í tónlistar-
kennslu. Efnið verður hægt að nota í allri tónlistarkennslu barna í leikskóla og
kennt samhliða í hljóðfæranámi og tónmenntakennslu.
Á undanförnum árum hefur orðið mikil þróun í tónlistarhugbúnaði. Þar á
meðal eru komin á markað nótnaskriftarforrit sem gefa alveg nýja möguleika á að
þróa kennsluefni fyrir hljóðfæra- og tónmenntakennslu. Stofnanirnar þrjár búa
núna yfir þekkingu og tækjakosti til að vinna slíkt efni.
Þær kennsluaðferðir og kennslubækur sem algengast er að nota nú um stundir
byggjast margar að verulegu leyti á því að kenna byrjendum í hljóðfæraleik lög sem
þeir kannast við. Einnig læra nemendur að syngja lögin áður en þeim er kennt að
spila þau á hljóðfæri og að læra að spila þau eftir nótum. Þetta er í samræmi við þá
grundvallarhugsun að slíkt sé jafn eðlilegt og að börn læra að tala áður en þau læra
að lesa og skrifa. Fyrir hljóðfærakennara er þetta ákveðið vandamál, þar sem mest
af því kennsluefni sem til er fyrir hljóðfæri er erlent og hentar þar af leiðandi ekki
jafn vel til kennslu fyrir íslensk börn. Það íslenska kennsluefni sem er til er tak-
markað og sérhæft fyrir hvert hljóðfæri.
Með því að vinna laga- og textabanka sem hluta af verkefninu Hljóðfæranám
fyrir alla er vægi tónmenntakennslunnar og þess starfs sem fram fer í leikskólanum
aukið vegna þess að kennslan nýtist í hljóðfæranáminu og í almennri kennslu, auk
þess sem slík vinna gefur alveg nýja möguleika í efnis- og lagavali við hljóðfæra-
kennsluna. í slíkum banka verður safn af lögum og textum sem safnað er í sam-
vinnu bekkjarkennara, tónmenntakennara, leikskólakennara og hljóðfærakennara.
Þessi lög eru varðveitt í tölvu þar sem þau verða tilbúin til útprentunar í öllum tón-
tegundum, sem er forsenda þess að hægt sé að nota þau til kennslu á mismunandi
hljóðfæri. Textarnir verða einnig tilbúnir til útprentunar sérstaklega. Þannig verða
þeir aðgengilegir til kennslu í tónlistarforskóla, tónmennt, leikskóla og almennum
bekk. Með þessu móti verður kennsluefni samþætt fyrir leikskóla, tónmennta- og
hljóðfærakennslu. Nemendur í hljóðfæraleik geta verið að vinna með sama efni á
hljóðfæri sitt og það sem hljómað hefur í kringum þá í leikskóla og almennu skóla-
starfi grunnskólans.
133