Árbók Háskóla Íslands - 02.02.1923, Blaðsíða 53
5—6. v.
SKÝRINGAR
43
sinni mána. Þetta mætti út af fyrir sig skilja svo, að sólin
sé fylginautur mánans, sem sé eldri en hún. Það er elzta
tímatal Germana að telja eftir nóttum, en ekki dögum.
Máninn er talinn á undan sólinni í Vfþrm. 22—23. »Ríðr
Nótt fyrri« (en Dagr sonur hennar), segir í Gylfaginningu
(9. kap.), og Tacitus í Germania (11. kap.): »nox ducere
diem videtur«.
stjörnur — átlu. Þessi visuorð standa siðast i hdr. Sn-E,
og er það líklega upprunalegra. Eigi að sleppa nokkru, svo
að visan fái rétta lengd, verður helzt að sleppa þeim.
6. vísa.
rökstólar; venjulega skýrt: ráðstólar, dómstólar (smbr.
Gylfaginning k. 13: settusk goðin i sæti sin ok réttu dóma
sína), en réttara væri ef til vill: valdstólar. Smbr. rök =
örlög, og röksamr = stjórnsamur (nú: röggsamur). Líkt og
sá, sem settist í Hliðskjálf, fékk hæfileika til þess að sjá um
alla heima, og líkt og páfinn er ekki óskeikull, nema hann
mæli ex cathedra — geta heiðnir menn hafa hugsað sér, að
goðin hefði sérstakl vald, þegar þau sæti á þessum þing-
stólum sínum. Þessi visuhelmingur er hafður sem einskonar
stef i fyrsta hluta Völuspár, sem segir frá gullöld Ása. í við-
burðum þeirn, sem siðari hlutar kvæðisins segja frá, var ekki
siður þörf viturlegra ráðagerða, en mátturinn virðist þorrinn.
Aftur á móti þýðir gœtask hér: rannsaka, ráðgast um. Fyrir-
mynd þessa vísuhelmings gæti vel verið Þrymskv. 14
(= Baldrs draumar 1):
Senn váru æsir allar á máli,
allir á þingi ok um þat réöu
ok ásynjur ríkir tívar . . .
En ólíkt meiri er arnsúgurinn i Völuspá.
þat vísar hér bæði fram fyrir sig og aftur: þeir réðu ráð-
um sinum um ástandið eins og það var, og bæturnar, sem
á því yrði ráðnar. En í 23., 25. og 9. vísu (sem er mynduð
(Völuspá 43). — DyrofT (Eine frage zu Völuspá 5, Zs. f. d. Pb. XL, 430
—32) vill lesa himin-jódýr, og skilja þaö um dýrahringinn (zodiacus).
Mundi þaö vist ekki bæta úr skák. En bæði Finnur Jónsson og Dyroff
gera ráö fyrir, aö verið sé að lýsa óeðlilegum sólargangi, og eru um
um það sammála Hoffory.