Freyr - 01.01.1955, Síða 95
Freyr á Helluvaði.
Hlaut 1. heiðursverðlaun á héraðs-
sýningu á Breiðumýri 1938.
sláturfjárframleiðslu hér á landi. Hóf ég
því áróður, ásamt Jóni bróður mínum, fyrir
því, að þetta mætti prófast hér á landi.
En það tók full 20 ár, að fá samþykki Al-
þingis og' landsstjórnar til þess.
Vorið 1032 fól ríkisstjórnin mér að kaupa
í Skotlandi 20 ær og 6 hrúta, allt vetur-
gamalt. í samráði við landbúnaðarráðu-
neytið skozka, keypti ég fé þetta í ná-
munda við Inverness, Border-Leicester-
kyn, sem þá var mest notað til blöndunar
við fjalllendiskynin. Fé þetta var í sóttkví
í Þerney í 3þ«> mánuð. Búnaðarfélagi Is-
lands var falin framkvæmd tilraunarinnar,
og samdi það við mig að gera hana hér í
Þingeyjarsýslu. Ég hafði þenna stofn til
hirðingar og umsjár í 9 ár, en þá var flú-
ið með hann héðan undan mæðiveiki nið-
urskurði 1941, og síðan hrakinn stað úr
stað, norðanlands og sunnan, þar til hann
var skorinn niður. Ég veit ekki hvert ár
það var. Ég seldi á annað hundrað hrúta
af þessu kyni, aðallega í Þingeyjar- og
Eyjafjarðarsýslum, og var reynsla manna
af einblendingunum nokkuð misjöfn, sem
von var. Þeir sköruðn því meira fram úr
sem haglendið var betra, og meðferð ánna.
Þeir flokkuðust vel, meiri bakhold og fall-
egra sköpulag gerði þá girnilegri. Kaupfé-
lag Þingeyinga hafði aðeins einu sinni sér-
sendingu á nokkrum hundruðum einblend-
ingskroppa til Lundúna, og töldu kjöt-
skoðunarmenn þar, að þeir væru mikil um-
bót á íslenzkri dilkaframleiðslu.
Karakúlpestirnar trufluðu þessa tilraun
hrapallega, en hún benti til þess, að ein-
blendingaræktin gæfi, eins og hér til hagar,
minni beinan arð en í Skotlandi, og mun
það valda, að Skotar lóga ekki sínum dilk-
um fvrr en þeir eru 7—10 mánaða, og ala
þá vel eftir 4 mánaða aldurinn, en hér er
öllum dilkum lógað 4 mánaða. Hjá mér
var kroppmcðalþungi einblendinganna
1—1% kg meiri, gærumeðalþunginn kg
meiri, en mör % kg minni og slátrin rýr-
ari, en hjá hreinkynja íslenzkum dilkum.
Laxamýrarféð.
Jón H. Þorbergsson fór utanlands 1906
og kynnti sér sauðfjárrækt í Noregi og
Skotlandi um 3ja ára skeið. Eftir heim-
komuna starfaði hann í þjónustu Búnaðar-
PREYB
fimmtíu ára
85