Freyr - 01.01.1955, Síða 254
Hin rammgjörða Vadstena höll bcr einkenni þeirrar aklar, er hún var byggð á. Síki eru umhverfis, þar yfir
hafa auðvitað verið vindubrýr forðum. Skotaugu eru á múrum, þaðan skykli varizt gegn óvinum.
Kvöldið á Vadstena var hið fegursta,
sem við áttum í Svíþjóð. Stafalogn var á
og glaðasólskin. Hné sól að skógi klæddum
hæðum norðvestan við Váttern, sem þarna
er eins og allbreiður fjörður á íslenzkan
mælikvarða. Stafaði hún geislum sínum á
spegilsléttan vatnsflötinn. En allmjög var
myndin önnur en íslenzk firðsýn gefur. Og
líkingin við íslenzkan fjörð hvarf fljótt,
þegar betur var skoðað. Vatnið er skolugt
og slær jafnvel á það brúnleitum blæ.
Landið var allt hulið þykkum skógi, en
firðsýn öll hjúpuð gráleitu mistri. Þó átti
þetta sólarlag sínar dásemdir og mun seint
gleymast.
Hin sænsku farfuglahreiður hvíla á herð-
um félaga, sem heita Svenska Turistfor-
eningen. Er það deild í alþjóða félagsskap
sem heitir The International Youth Hostel
Federation. Einkunnarorð hinnar sænsku
starfsemi eru: „Vill Du fara, bör Du
spara,“ og er starfsemin við það miðuð.
Þeim, er forustu þessara mála hafa á hendi
þar í landi, er ljóst, að fleiri þrá að sjá
umhverfi sitt, og þá ekki aðeins hið allra
næsta, en þeir, sem hafa fullar hendur fjár,
enda óvíst, að ferðamenningu yfirleitt væri
að því að nokkru borgnara, þó þeir einir
ættu þess kost, sem svo væru að heiman
búnir. Viðtökur þær, sem við áttum að
mæta á þessum sænsku farfuglahreiðrum,
voru hinar ágætustu, — alúðleg kurteisi,
og svo fljót afgreiðsla, að til fyrirmyndar
var. Itisna öll með ágætum. Allt bar vott
um hófsemi og hagsýni. —
244
fimmtíu ára
FRE YR