Freyr - 01.01.1955, Síða 302
ÞORKELL HELGASON:
Næturgisting í Nittedal
Okkur ferðafélögunum í bændaförinni til
Norðurlanda var haldin veizla í hotel
,,Dronningen“ í Oslófirðinum.
I þeirri veizlu veitti ég sérstaka athygli
manni nokkrum, sem kvaddi sér hljóðs og
mælti á íslenzku, að vísu með sterkum
norskum hreim. Hann beindi sérstaklega
Etlvald Bóasson.
máli sínu til okkar íslendinganna, og vit-
anlega reyndi ég að leggja við hlustirnar,
cn því miður var svo langt á milli okkar
við borðið, að ég fylgdist ckki nógu vel
með því, sem hann sagði í þessari ræðu.
En sem betur fór átti ég eftir að kynnast
manni þessum dálítið meira, þó að vitan-
lega yrðu þau kynni ekki mikil, þar sem
samvistir okkar urðu aðeins nokkrar
klukkustundir.
Eins og öll ævintýrin í þessari ágætu og
ógleymanlegu ferð okkar, endurtók þetta
sig einnig. Daginn eftir bar fundum okkar
aftur saman, og þá á ekki óþekktari stað
en Frognersæteren, hinum fræga og fagra
skemmtistað þeirra Oslobúa. Ég notaði
tækifærið og kynnti mig fyrir manni þess-
um, sem reyndist vera íslenzkur bóndi, er
hefur búið síðan 1926 að Norðurdal í
Nittedal, og dvalið í Noregi í 41 ár.
Bóndi þessi heitir Edvald Bóasson, frá
Reyðarfirði, sonur Bóasar Bóassonar og
konu hans, Sigurbjargar Halldórsdóttur.
Er við tókum tal saman, kom í Ijós, að
við áttum sameiginleg áhugamál um bú-
skapinn, enda fór svo, að við áttum bágt
með að sætta okkur við það skjótan skiln-
að, sem þarna hlaut að verða, ef ekki kæmi
eitthvað óvænt fyrir.
Og það óvænta skeði. Ég átti frí til kl.
11 daginn eftir, og fararstjórinn okkar gaf
292
fimmtíu ára
F R E Y R