Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1974, Page 55

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1974, Page 55
Nyrðra, sySra, vestra baukað, hurfu bandhnyklar hjá móður minni. Móðir mín vissi ekki, hvernig á hvarfi þeirra stóð, fyrr en hún uppgötvaði, að það var ég, sem tók þá. Ur þeim bjó ég til silungsnet til að veiða í vatninu. Þannig byrjaði ég netagerð. Ég lék mér mikið í stórum járnpotti, sem í hafði verið brætt hvallýsi. Hann var uppi í bæjarsundi og þar voru líka hvalbein. í pottinum reisti ég upp hvalbein, sem ég hafði fyrir mastur. Svo sat ég og kvað vísu, sem ég hef lík- lega lært mjög ungur: Stóra mastrið stend ég við storminn fast í góni. Aflið rastar út á hlið öldu kastar ljóni. — Brak úr skipi var í fjörunni neðan við bæinn og þar lék ég mér líka oft. Svo var æðarvarp rétt við túnfótinn. Ég fór stundum í varpið með fólk- inu, sem tíndi dún og safnaði eggjum. Undan æðarkollunum var alltaf tekið eitthvað af eggjum. Það var til siðs að hafa með sér blátt blek í krúsum og fjöðurstaf. Eggin, sem eftir voru, voru alltaf merkt með fjöðurstafnum, til að ekki væru tekin gömul egg úr hreiðrunum. Þessu man ég vel eftir. — Reri faðir þinn til fiskjar? — Ég man, að faðir minn stundaði sjó frá Harðbak á lítilli byttu. Hann reri alltaf einn og fór alltaf svo langt út, að við sáum hann ekki. Hann fisk- aði oft vel og dró stundum fallegar lúður. Útfiri var mikið. Hann varð að hafa langa festi í bátnum og draga hann að landi, þegar flæddi undir hann. Stundum skaut faðir minn sel. Ég man eftir því, að eitt sinn þegar við vorum að gera að fiski, kom selur upp undir fjöruna. Hann fékk mér rauðan tó- baksklút og sagði mér að veifa klútnum framan í selinn, meðan hann hlypi heim eftir byssu, en það var dálítill spölur heim að bænum. Ég gerði þetta, en selurinn var farinn, þegar hann kom aftur, svo að ekki varð af þeirri veiði. Hann hafði alltaf tvær byssur heima. Færeyingar og Frakkar áttu það til að fara að landi og stela kindum. Hann lenti nú samt aldrei í illindum við þá. Hins vegar kom hafís einn vetur að minnsta kosti. Ég man, að maður heyrði þá stundum stunur í bjarndýrum. í beitarhús þurfti hann að fara dálítið langa leið, sem lá fyrir framan vatnið. Hann hafði ævinlega með sér byssu hlaðna. — Voru miklar vetrarhörkur þessi ár? — Það voru miklir snjóar. Það þurfti að moka frá bæjardyrunum. Bæjar- 181
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.