Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1974, Page 64

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1974, Page 64
Tímarit Máls og menningar 15 og 20 nöfn og merki undir það, sem ég skrifaði. Margar pólitískar grein- ar skrifaði ég undir nafninu Kvásir. Oft skrifaði ég líka undir stöfunum I. J., en það gerði líka annar, Ingimar Jónsson. —- Skrifaði Hendrik Ottóson undir nafni? — Hendrik skrifaði venjulega undir nafni eða H. 0. — Og Sigurður Jónasson? — Hann skrifaði alltaf undir nafni. — En Dýrleif? — Hún skrifaði ákaflega lítið í blaðið. Hendrik og Sigurður skrifuðu yfirleitt ekki mikið. Ég var sá, sem hélt þetta lengst út. — Þú þýddir líka í blaðið? — Ég þýddi oftast framhaldssögurnar, sem komu, en Stefán Pétursson þýddi eina, sem hét Ævintýri. Ég þýddi Kol lconung eftir Upton Sinclair, og ég þýddi Tarzan-sögurnar. Ólafur hafði haft með sér frá Englandi eina Tarzan-söguna í vasanum. Þegar ég var búinn að lesa hana, kom okkur sam- an um að setja hana í blaðið. Þá byrjaði ég að þýða hana. Ég hafði bókina alltaf í vasanum og þýddi á hverjum degi það, sem koma þurfti í blaðinu. Þegar ég var búinn að þýða 50 blaðsíður, þurfti ég ekki lengur að fletta upp í orðabók. Höfundurinn var ekki orðfleiri en svo. Síðan hef ég tekið eftir því, að maður er kominn inn í orðaforða höfundar að mestu leyti, þegar maður er búinn að þýða nokkurn hluta af bók hans. Það var jafnvel svo um Jack London, þótt hann sé orðfleiri höfundur en Edgar Rice Burroughs. — Voru þetta ekki strangir dagar hjá ykkur Ólafi? — Við gáfum okkur tíma til að setjast inn á kaffihús seinni hluta dags, venjulega kaffihúsið í kjallara Nýja Bíó, sem Rosenberg rak. Þar rifumst við um stjórnmál við unga og gamla, en sérstaklega þó við unga menn. Ólafur var alltaf agitatoriskur. — Og mikill fundarmaður? — Hann var snjall „folketaler“, ákaflega „slagfærdig“ á opinberum fund- um, fljótur til svara, þegar gripið var fram í fyrir honurn og setti ofan í við þá, sem fram í tóku. Hann var áheyrilegur, skýr og skemmtilegur. En mest áhrif hafði hann á menn með viðræðum sínum. — Ólafur fór nokkrar ferðir til útlanda á þessum árum? — Ólafur fór á annað þing 3. alþjóðasambandsins í Moskvu 1920 og aftur 1921 á þriðja þing þess, þá með Ársæli Sigurðssyni. Auk þess mun hann hafa verið þrjá mánuði í Bretlandi til að kynna sér verkalýðsmál þar- lendis. I fjarveru hans sá ég um Alþýðublaðið, oftast einsamall. 190
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.