Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1974, Side 90

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1974, Side 90
Tímarit Máls og menningar nú aukið tengslaleysi niilli manna, aukin einstaklingshyggja og sjálfsánægja hinna efnahagslega og trúarlega hólpnu. Efnahagsleg velgengni var mönnum mun meira atriði heldur en fyrrum og því afskiptari urðu öreigarnir. Lag- skipting samfélagsins varð gleggri milli rikra og snauðra. Gerð samfélagsins og hugmyndir manna um samfélag annars heims voru hliðstæður. í kaþólskri tíð var samfélagsgerðin einnig hliðstæða þess, sem talið var laka við að jarð- neskri vist lokinni, en sú hugmynd veitti mannanna börnum auðveldari úr- kosti og var um flest mennskari heldur en hugmyndir mótmælenda um eilíft líf. Samfélagið varð þrátt fyrir allt ómennskara en verið hafði á miðöldum, firringin meiri, ef hún á þá ekki upphaf sitt, í nútíma merkingu orðsins, í byrjun nýju aldar. Endurspeglun samfélagsgerðarinnar í hugmyndum manna um eilíft líf og öflin, sem réðu velgengni manna í þessu lífi, hneig til þess að magna galdra- óttann. Guðshugmyndin og hugmyndin um djöfulinn átti sér hliðstæður í mannheimi. .,Góður landstjórnarmaður“ og andstæðingur hans léku þar hlut- verkin. Trúmáladeilurnar og hatrið, sem af þeim spratt, ollu svipuðum við- hrögðum víðast hvar í löndum mótmælenda og kaþólskra. Andstæðingurinn var á snærum hins Vonda og fulltrúar hans voru galdranornirnar. Hinum afskiptu, utangarðsfólkinu, fannst það oft vera fjarlægt almennt viðurkenndu trúarformi, og þegar einskis var að leita hjá þeim guði, sem ríkjandi samfélag viðurkenndi sem sinn, þá voru dæmi um, að leitað væri til andstæðu hans. Slík einstök dæmi urðu guðs vinum tilefni til almennari samstöðu gegn hópum, þar sem þeir töldu forsendur fyrir svo hryllilegum frávikum frá ríkjandi trúarbrögðum. Galdratrúin varð auðveldlega noluð til þess að gera öll frávik frá hefð- bundnum trúarformum tortryggileg og í stjórnmálum gat hún verið hið skæðasta vopn, ef laglega var á haldið. Hin djöfullega þrenning I galdramálum koma fram þrjú fyrirbrigði, djöfullinn, árinn og nornin eða seiðskrattinn. Höfuðpaurinn var djöfullinn, en að eðli er hann tákn óskapn- aðarins og illskunnar, fallinn engill, sem féll á eigin hroka. Afl undirdjúp- anna, eyðileggingarinnar og sálardauðans, upphaf lyginnar og lygin í raun, skaðvaldur allrar sköpunar og grósku, eiturnaðra í akri drottins. Þannig hljóða lýsingarnar á óvininum. Upphaf ókindar þessarar var ótti manna við hið hræðilega, óskepið, ginnungagapið, hryllinginn. Skelfingin skapaði hug- 216
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.