Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1974, Page 122

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1974, Page 122
Tímarit Máls og menningar itt að sjá, hversvegna menn þurfi á að halda speki „evrópskra siðfræðinga á 12. öld“ til að útskýra slíkt samband. „Grettir er ekki einungis ofsamaður, heldur sýnir hann einnig af sér mikið þolleysi“ (83), einsog Hermann kemst að orði. Mikið rétt. En ætli menn liafi ekki hvenær og hvar sem er á hnettin- um getað komizt hjálparlaust að þeirri einföldu reynslu, að slík skapgerð manns geti valdið honum sjálfuin erfiðleikum og tjóni. Það torveldar ekki sízt athugun á hugtakinu gæfa/hamingja í íslenzkum fornbókmenntum, að það er notað í afar mismunandi merkingum. Gæfan, eða ógæfan, getur verið nokkurs konar fylgja mannsins, einsog í ævi Gísla Súrssonar; en hún getur einnig verið tengd aðeins vissum hliðum í lífi mannsins, jafnvel einstökum atriðum. I Olajs sögu Tryggvasonar eftir Snorra er Ólafur látinn spyrja einsetumann, „hvernug honum myndi ganga til ríkis eða annarrar hamingju“ (266). Þ. e. a. s. hamingjan virðist hér vera skilin ekki sem eiginleiki eða fylgja Ólafs, heldur sem hnoss, sem fellur honum í skaut. Um Hákon jarl í sömu sögu segir, að hann hafi átti „speki ok kœnleik at fara með ríkdóminum, rgskleik í orrostum ok þar með liamingjuna at vega sigrinn ok drepa fjándmennina“ (298). En rétt á eftir fáum við að vita um sama mann: „Manna grvastr var Hákon jarl, en ina mestu óhamingju bar slíkr hgfðingi til dánardœgrs síns.“ (299) Hefur Ilákon þá verið hæði gæfumaður og ógæfumaður? Auðsjáanlega er gæfan hér enginn allsráðandi og stöðugur eiginleiki. Jarlinn hefur verið gæfusamur að mörgu leyti; liins- vegar varð liann ógæfusamur í smánarlegum dauða sínum, þegar hann var drepinn af þræli í svínabæli. Hermann minnist dálítið hæðnislega á þá „formælendur heiðninnar“, sem hann telur að líti svo á, að orðin gœja og hamingja séu „allt annarrar merk- ingar í Alexanders sögu en Vatnsdæla sögu, en þetta mikilvæga orð kemur alloft fyrir í báðum sögunum“ (82). En hvort sem við erum nú formælendur hins eða þessa, þá er eitt víst: hamingj an er allt annarrar merkingar, og ekki sízt af allt öðrum uppruna, í Alexanders sögu en í Vatnsdœla sögu. En einsog kunnugt er, er Alexanders saga þýðing, eftir Brand Jónsson, á miklu og víð- frægu söguljóði á latínu frá 12. öld. í því kvæði er óspart notað orðið for- tuna, en Fortuna var hamingju- eða örlagagyðja fornítala. Hamingjan kemur einnig fram persónugerð í Alexanders sögu. Þessi gyðja úthlutar mönnum gæfu og ógæfu, og hefur ósjaldan verið kvartað undan hverflyndi hennar, enda er tákn hennar hið hverfanda hvel. Hamingjan í Alexanders sögu, eftir kristinn höfund og jafnkristinn þýð- anda, er þá alheiðið hugtak, en úr allt annarri heiðni en hinni norrænu. Her- 248
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.