Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1974, Page 134

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1974, Page 134
Tímarit Máls og menningar rentu og aðrar tegundir fasteigna, þegar kemur fram á síðari hluta 18. og einkum fyrri hluta 19. aldar. Höf. nefnir sauða- söluna um 1890 sem eina ástæðuna fyrir kaupum leiguliða á ábýlisjörðum sínum, einnig mætti geta hákarlsútgerðar í Höfða- hverfi og á Látraströnd, en afrakstur þess útvegs var gríðarlegur og færði bændum á þessum slóðum meira reiðufé en áður hafði þekkzt. Höf. getur og áhrifa kaupfélags- hreyfingarinnar og bættra verzlunarkjara, en var ekki ísinn brotinn í þeim efnum með stofnun Gránufélagsins og forsendu þess, „styrk af afli auðs, hákarls"? Höf. nefnir að þingeyskar félagsmála- hreyfingar hafi haft einhver óbein áhrif á jarðeignapólitíkina, sem er rétt, og koma þar til áhrif ungmennafélaganna og sam- vinnuhreyfing og frumstefna Framsóknar- flokksins, enda gætti þeirra áhrifa vítt út um sveitir landsins, þótt áhrifin væru hvað mest í heimabyggð þeirra manna, sem vöktu þær hreyfingar. Þótt ritið sé ein- skorðað við Suður-Þingeyjarsýslu, þá verð- ur svipuð þróun víða um land í breyting- um á ábúð og eignarhaldi jarða á sania tímabili. Rit Björns hefur því einnig al- mennt gildi fyrir landið allt. Frá 1930 til dato hafa orðið miklar breytingar á byggð í landinu, markaðsbú- skapur hefur aukizt og tekið er að örla á sérhæfingu í landbúnaði, og nú má sjá fyrir enn örari framvindu í þeim efnum. Meðan þessar kerfisbreytingar eru að gerast í landbúnaði, þá verður að tryggja að landið verði nýtt til matvælaframleiðslu og byggðar þeirra, sem þar að vinna. Jarðabraskið hefur hafizt á síðustu ára- tugum og nú virðist hætta á því að önnur sjónarmið en nýting og byggð landsins ráði eignarhaldi jarða. Það er orðið of mikið um það, að óheppilegir aðilar nái tangarhaldi á jörðum bænda og komi í veg fyrir verðuga nýtingu landsins og búsetu. Er hér átt við fjáðan lágmenningarlýð þéttbýlisins, sem er slitinn úr öllum tengsl- um við land, þjóð og sögu og á því engan rétt til lands, nema til þeirra fáu álna, sem öllum eru ætlaðar að lokum. Það er ömur- leg framtíðarsýn ef braskaralýður, þjóð- villingar af tagi VLinga og fyrirbrigðin úr samtökum, sem nefna sig frjáls menning, nær tangarhaldi á jarðeignum og kámi þar með næsta umhverfi sitt, með einni saman dvöl sinni út um breiðar byggðir landsins. Rit Björns Teitssonar er að allri gerð góð fyrirmynd að frekari rannsóknum af- markaðra sviða Islandssögunnar, vandað og vel unnið. Siglaugur Brynleijsson. BRYNJÓLFUR BISKUP Isafoldarprentsmiðja hefur undanfarin ár staðið að útgáfu bókaflokks, sem nefnist „Menn í öndvegi", safn ævisagna valda- manna hérlendra. Komnar eru út bækur um Gissur jarl, Skúla fógeta, Jón Loftsson, Jón biskup Arason og ævisaga Brynjólfs biskups Sveinssonar. Sú síðast talda er sett saman af Þórhalli Guttormssyni.1 Brynjólfur biskup Sveinsson er sú per- sóna íslandssögunnar, sem landsmenn hafa aldrei þreyzt á að tala og skrifa um, eink- um vegna einkamála hans. Höfundur þess- arar skýrslu um lífshlaup biskups byrjar á því að lýsa sögusviðinu, 17. öldinni og forsendum þess á 16. öld. 17. öldin verður ekki sérlega gleðilegt tímabil í meðförum höfundar, íllt árferði, verzlunareinokun, umburðarleysi í trúmálum, miskunnarlaust réttarfar, rétttrúnaður, og eins og höf. seg- ir „síðast en ekki sízt, djöfla og galdra- 1 Brynjóljur biskup Sveinsson. ísafoldar- prentsmiðja 1973. 114 bls. 260
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.