Gripla - 20.12.2006, Blaðsíða 163
GRÝLA KARLS ÁBÓTA 161
Enn skarpari skil verða í frásögninni í kringum 100. kapítula sem lýkur á
ræðum Sverris eftir fall Magnúsar konungs. Ræða Sverris í kaflanum á undan
kallast á við eitt lykilþema í upphafi sögunnar þar sem finna má vísun til
Davíðs konungs og samsömun Sverris við hann.5 Guð hefur hér leyst Sverri úr
þrengingum og leitt hann til ríkis eins og Davíð forðum. Margir hafa talið að
Grýlu hafi lokið hér, þar á meðal Finnur Jónsson í bókmenntasögu sinni
(Finnur Jónsson 1923:378 o. áfr.). Meðal þess sem talið hefur verið að mæli
með þessari niðurstöðu er að 100. kafla lýkur á því að sagt er frá kvonfangi
Sverris og börnum sem hann átti fyrir, ekki hins vegar dótturinni sem hann átti
með Margréti drottningu. Þá er þess einnig að gæta að sá hluti sem við tekur,
þ.e. frá 101. til 128. kapítula, er efnisrýrari, rétt eins og höfundur hafi ekki átt
jafngreiðan aðgang að heimildum. Öðru máli gegnir hins vegar um síðasta
hlutann, frá 129. kapítula til söguloka, þar sem sagt er frá Baglastríðunum.
Eins og fyrsti hlutinn er Baglaþátturinn ítarlegur og tímatal áreiðanlegt.
Augljóst er hins vegar að afmörkun Grýlu við 100 fyrstu kaflana kemur
heldur illa heim við orð formálans eins og þau hafa verið skilin. Sá hluti tekur
yfir meira en helming sögunnar og greinir frá fjölmörgum orrustum. Fleira
hefur verið tínt til, m.a. það sem Sigurður Nordal nefnir í formála sínum að
útgáfu sögunnar í Flateyjarbók 1945:
sumt mundi Sverrir, ef hann hefði verið nærstaddur, aldrei hafa þolað
Karli að rita, t.d. hina eitruðu sneið Eiríks konungsbróður um vafann á
faðerni Sverris: „Eigi vil ek þetta járn bera fleirum mönnum til fað-
ernis en mér. (Flateyjarbók III 1945:xi)
Sigurður var einn þeirra sem taldi Grýlu hafa náð til og með 42. eða 43. kafla,
en jafnframt taldi hann að Karl Jónsson hefði haldið áfram ritun sögunnar eftir
heimkomuna og þar með lokið fyrstu 100 köflunum. Lárus H. Blöndal var
sama sinnis að því leyti og kallaði þessa fyrstu 100 kapítula Bók Karls ábóta
(Lárus H. Blöndal 1982:80–123).
6
Sú kenning að Grýla Karls Jónssonar hafi náð yfir 31 kafla fremst í sögunni
hefur hlotið mikinn hljómgrunn. Hún er sú kenning sem studd hefur verið
flestum rökum, og bæði Ludvig Holm-Olsen og Lárus H. Blöndal aðhylltust
5 Þessi samsömun Sverris með Davíð konungi kemur einnig fram í því að hann kallaði borgina
sem hann reisti við Niðarós Síon, en höfundur Sverris sögu gerir það ekki að neinu sérstöku
umræðuefni.