Skírnir - 01.04.2000, Page 67
SKÍRNIR STURLUNGA, GOÐAVELDIÐ OG SVERÐIN TVÖ 61
eigi rétta er skillitlir menn drepa niður höfðingja og vil eg því heita þér
minni liðveislu of þetta mál þá er til þings kemur.23
En þótt Jón geri greinarmun á höfðingjum og „skillitlum mönn-
um“ viðurkennir hann hvorki sjálfstæði kirkjunnar né vald henn-
ar yfir sér og sínum líkum og hann talar eins og valdið helgist af
eignarrétti, eins og það gerir í heimi Islendingasagnanna. Að hans
hyggju eru kirkjugoðar æðstu menn samfélagsins. Þessi skoðun
birtist í orðaskiptum Jóns og Þorláks biskups í Oddaverja þætti.
Jón ætlaði að fá biskup til að vígja nýja kirkju sem hann hafði lát-
ið byggja að Höfðabrekku:
Herra biskup spurði - hvárt Jón hefði heyrðan erkibyskupsboðskap um
kirknaeignir.
Jón svaraði: „Heyra má ek erkibyskupsboðskap, en ráðinn em ek í at
halda hann at engu, ok eigi hygg ek, at hann vili betr né viti en mínir for-
ellrar, Sæmundr inn fróði ok synir hans. Mun ek ok eigi fyrirdæma
framferði byskupa várra hér í landi, er sæmdu þann landssið, at leikmenn
réðu þeim kirkjum, er þeira forellrar gáfu guði ok skildu sér vald yfir ok
sínu afkvæmi."
Byskup svaraði slíkum skynsemdum sem fyrr váru lesnar ok mörg-
um öðrum, svá segjandi: „Vel veizt þú þat, Jón, ef þú vilt sönnu fylgja, at
byskup á kirkjueignum at ráða ok tíundum eftir setningum postulanna
ok annarra heilagra feðra, ok því, at leikmenn megu ekki yfir þeim hlut-
um vald eignast, - eru þeir bannsetjandi, sem tíundum eða guðs eignum
halda með þrjózku móti byskupa vilja ok samþykki."
Jón svaraði: „Þér meguð kalla þann bannsettan, sem þér vilið, en
aldri mun ek í yðvart vald já minni eign undan mér, minni kirkju eða
meiri, þeiri sem ek hefi vald yfir.“24
Snorri Sturluson var í fóstri hjá Jóni Loftssyni. Af ritum Snorra
má ráða að hann hafi hugsað um stjórnmál á svipuðum nótum og
Jón. Egils saga, sem er að líkindum samin af Snorra, túlkar hug-
sjónina um sjálfstæða höfðingja. Um þetta segir Vésteinn Ólason:
Hugmyndafræði Egils sögu er skýr, hún miklar hinn frjálsa bændahöfð-
ingja. Skýrleiki hugmyndafræðinnar gæti bent til að þessari hugmynda-
23 Sturlunga 1988:182.
24 Oddaverja þáttr 1953:137.