Skírnir - 01.04.2000, Page 150
144 INGRID U. OLSSON OG ELSA G. VILMUNDARDÓTTIR SKÍRNIR
samræmd vegna C-13. Ef mælingar vantar af einhverjum ástæð-
um, hefur þess verið getið og líkleg gildi notuð í útreikningum.
Danska mælingin, K-940, sem gaf einn hæsta aldur sem hefur
mælst á sýni vegna landnámsins, olli þegar í stað áhyggjum forn-
leifafræðinga vegna þess að virknin virtist vera um 3% of lág ef
fornleifafræðingarnir hefðu rétt fyrir sér og ekki væru veilur í C-
14 aðferðinni. Þegar kvörðunarferlar fóru að birtast á sjöunda
áratugnum minnkaði bilið milli niðurstaðnanna og hefðbundnu
aldursgreininganna. Samtímis komu fram jarðeðlisfræðilegar
mælingar sem sýndu lægri geislavirkni í andrúmsloftinu yfir Is-
landi, og fleiri eyjum á norðurslóðum, en á öðrum svæðum.
Munurinn hefur verið allt að 3%, en er almennt talinn vera minni
en 1%.
Sýni frá því fyrir áhrif iðnvæðingarinnar eru auðvitað mjög
áhugaverð, en geta tæplega gefið lausn á vandanum hvað varðar
of lága geislavirkni, vegna þess að áhrif iðnvæðingarinnar eru af
margvíslegum toga á mismunandi stöðum og losun efna hefur
líka verið breytileg í tímans rás. Aðgengilegar niðurstöður frá
ýmsum svæðum og meginlöndum benda líka til breytileika.
Aldursgreiningar sem eru tengdar byggingum í Reykjavík
sýna í aðalatriðum sömu útkomu í aldursgreiningum. Þær spanna
talsvert langt tímabil og falla inn í tímaskalann þar sem kvörðun-
arferillinn er mjög flatur. Mæliniðurstöður gefa til kynna aldur
sem er aðeins hærri en 1200 ár en flatinn á kvörðunarferlinum
sýnir aldur sem er mjög nálægt því að vera 1200 ár. Flatinn á við
um tímabilið frá seinni hluta 8. aldar fram til seinni hluta 9. aldar
e. Kr.
Þegar fjallað er um niðurstöður nokkurra tuga aldursgrein-
inga á sýnasamstæðum, er það ákaflega mikilvægt að horfa ekki
einungis á einstakar niðurstöður tölfræðilega, heldur einnig með
heildina í huga, vegna þess að búast má við að sumar mælingar
sýni of lágan aldur en aðrar of háan, og að munurinn geti töl-
fræðilega verið allt að tvö staðalfrávik frá meðalgildinu.
Ef horft er á stöðuna eins og hún lítur út í ljósi þeirrar þekk-
ingar sem við búum yfir í dag um C-14 aldursgreiningar, getur
landnám mjög líklega hafa hafist einhvern tímann frá lokum 8.
aldar og fram til loka 9. aldar. Nákvæmari tímasetning út frá C-