Skírnir - 01.04.2000, Page 186
180
JÓN ÓLAFSSON
SKÍRNIR
iii) Það er, að mínu mati, rangt að líta á Sósíalistaflokkinn sem
útibú sovéska kommúnistaflokksins. Kommúnistaflokkur Islands
(1930-1938) var samkvæmt eigin skilgreiningu útibú frá (eða
deild í) Komintern en sama er ekki hægt að segja um Sósíalista-
flokkinn. Einar Olgeirsson, formaður flokksins 1939-1968, taldi
að flokkurinn gæti fært sér tengsl sín við Moskvu í nyt, að þau
styrktu stöðu hans í innanlandspólitík, og í þeim anda voru öll
samskipti hans við Sovéska kommúnistaflokkinn eftir seinni
heimsstyrjöld.
iv) Siðferðilegt mat á leynimakki flokksins, tengslum leiðtog-
anna við kommúnista í austurvegi og margvísleg samskipti við þá
breytist í samræmi við þetta. Það er ekki endilega hinn pólitíski
hráskinnsleikur sem telst ámælisverðastur, heldur blekkingarnar
innan flokksins sjálfs. Nokkrir leiðtogar flokksins hikuðu ekki
við að fara á bak við allan þorra flokksmanna í mörgum stórmál-
um. Hins vegar er auðvitað einföldun að líta á óbreytta fylgis-
menn sósíalista sem saklaus fórnarlömb: Það er einstaklega ótrú-
verðugt þegar menn, sem voru virkir í flokksstarfi á þeim árum
sem sovétsamskiptin voru mest, segjast „ekkert hafa vitað“.
Óheiðarleikinn og hræsnin sem sovéttengslin afhjúpa var fylgi-
fiskur fleiri flokksfélaga en helstu leiðtoga flokksins.
Eg ætla nú að færa rök fyrir þeirri skoðun minni að síðara
viðhorfið lýsi flokknum og sovétsamskiptum leiðtoganna betur
en fyrra viðhorfið.
Þegar rætt er um skipanir og hlýðni við þær og tímabilið eftir
að Stalín náði öllum völdum í Sovéska kommúnistaflokknum er
hið pólitíska landslag kommúnismans oft einfaldað úr hófi. Sú
skoðun er furðu algeng að öll þróun kommúnistaflokka og Sov-
étríkjanna á þessum tíma hafi ráðist af vilja Stalíns í bland við
meginstefin úr kommúnisma Leníns. Þessi skoðun virtist svo sem
ekki fráleit á meðan langmestum hluta skjalaheimilda um þessa
tíma var haldið stranglega leyndum. En eftir að aðstæður breytt-
ust og fræðimenn fóru að geta kynnt sér umfangsmiklar og oft
nákvæmar heimildir um Alþjóðasamband kommúnista, Komm-
únistaflokk Sovétríkjanna og sögu Sovétríkjanna yfirleitt, hefur
komið í ljós að hún felur í sér grófa einföldun.