Skírnir - 01.04.2000, Page 230
224
AUÐUR ÓLAFSDÓTTIR
SKÍRNIR
Útskornar erkitýpur
Einn grundvallarþáttur listsköpunar
Hannesar er að búa til myndverk af
þeirri menningu sem mótar sjálfs-
mynd okkar og tjáningu, eins konar
erkitýpur íslenskrar menningar.
Þannig geta menn búist við því að
hitta fyrir „grunnöfl íslenskrar menn-
ingar“ eða „goðsagnir íslensks mynd-
listarheims" í fagurlega útskornum
skúlptúrum, til að mynda í líki ausu,
andar eða lóu, svo tekin séu dæmi af
nokkrum grunntáknum í list Hann-
esar. „Islendingnum í dag og þeirri
ímynd sem hann hefur af sjálfum sér“ hefur hann til dæmis tileinkað út-
skorna lágmynd, eins konar samruna andar og dreka, og nefnt verkið
Villiandinn. Samband listar og almennings hefur hann hins vegar túlkað
með sérstökum gerðum útskorinna tréanda af þeirri gerð sem prýðir for-
síðu þessa heftis Skírnis. Myndmál Hannesar og táknheimur er í senn
persónulegur og alþjóðlegur; þannig verða haganlega útskornar kampa-
vínsflöskur að táknmyndum fyrir þá fágun og vellystingar meginlands-
menningar sem „eyjaskeggjann dreymir um að eiga hlutdeild í“.
Ákveðin grundvallarminni birtast aftur og aftur í verkum Hannesar í
ýmsum tilbrigðum og mismunandi samhengi, og saman mynda þau eins
konar persónulegt stafróf. Meðal þeirra má nefna teinunginn norræna,
bókina, fálkann og steininn. Þótt sömu táknin gangi þannig aftur og aft-
ur eru mynstur verkanna ekki endilega fyrirsjáanleg. Listamaðurinn
vinnur á mörgum merkingarsviðum samtímis og hver sýning hans felur í
sér fjölmargar vísanir og sama máli gegnir raunar um hvern einstakan
hlut í samsettum verkum hans. Verk hans höfða til rökhugsunar og tákn-
líkinga, án þess að útiloka fyrir bragðið hreina tilfinningalega eða sjón-
ræna upplifun á grundvelli lita eða forma.
Lóan er eitt þeirra tákna sem áberandi hafa verið í verkum Hannesar
á síðustu árum. Þótt fjallað sé um vorboðann ljúfa á forsíðum dagblaða
og í aðalfréttatíma útvarps/sjónvarps þegar hann kemur til landsins er
ekki sjálfgefið að aðrir en Islendingar skilji táknið. Lóan verður í með-
förum Hannesar fugl fólksins í landinu, tákn alþýðumenningar og þess
að það er líf í landi eftir langan og dimman vetur.
Litir skipta miklu máli í verkum Hannesar og það er að sínu leyti at-
hyglisvert og raunar dæmigert fyrir það hvernig listamaðurinn teflir
stöðugt saman þjóðlegri og alþjóðlegri menningu, hvernig honum tekst
jafnvel að tengja alþjóðlegt tungumál lita rammíslenskum rímnakveð-
skap:
VÖÐVAR
MUSCLES
Hannes Lárusson: „Rándýrið“.
Boðskort, 1991.