Skírnir - 01.04.2000, Page 244
ARCHAEOLOGIA
ISLANDICA
riMABir rt‘ENUllAVIOISUNA« fy.ANOS
NÝTT TÍMARIT
UM ÍSLENSKA FORNLEIFAFRÆÐI
Nýlega kom út fyrsta hefti Archaeologia Islandica, tímarits Fornleifastofn-
unar Islands um íslenska fornleifafræði, og er von á næsta hefti á þessu ári.
f fyrsta hefti tímaritsins er m.a. að finna yfirlitsgrein um sögu fornleifa-
skráningar á íslandi og hugleiðingu um rannsóknargildi fornleifaskráning-
ar. Mestur hluti ritsins er helgaður rannsóknum á fornbýli að Hofstöðum í
Mývatnssveit og er gerð grein fyrir niðurstöðum undirbúningsrannsókna,
sem fram fóru á árunum 1991-1995, og greint frá ýmsum nýjum aðferðum
sem beitt hefur verið við rannsóknirnar síðan 1996. Þá eru í tímaritinu rit-
dómar um nýlegar bækur á sviði íslenskrar fornleifafræði og skýrsla um
starf Fornleifastofnunar íslands frá upphafi.
Tímaritið, sem er á íslensku og ensku, mun koma út einu sinni á ári.
Ritstjóri tímaritsins er dr. Gavin Lucas og ritstjórn skipa Adolf Friðriks-
son, Garðar Guðmundsson og Orri Vésteinsson.
Mikil gróska er í fornleifarannsóknum á íslandi og er mikilvægt að
skapa vettvang fyrir alþjóðlega umræðu á sviði íslenskrar fornleifafræði,
miðla árangri íslenskra fornleifarannsókna til hins alþjóðlega vísindasamfé-
lags og skila erlendri umfjöllun um íslenskar fornleifar til Islendinga. Við-
fangsefni tímaritsins verða fyrst og fremst íslenskar fornleifar og menning-
arsaga en einnig fornleifafræði landanna umhverfis Norður-Atlantshafið að
því leyti sem hún tengist íslenskum rannsóknarefnum. í ritinu verða
skýrslur um yfirstandandi rannsóknir, almennari umfjöllun um ákveðin
rannsóknarefni og álitamál í íslenskri fornleifafræði, ritdómar og árlegt
yfirlit um fornleifarannsóknir á íslandi. - Áskriftarverð er kr. 1.900.
Nánari upplýsingar fást á skrifstofu Fornleifastofnunar íslands,
Bárugötu 3, 101 Reykjavík, í síma 551 1033
eða í tölvupósti fsi@instarch.is