Skagfirðingabók - 01.01.1967, Page 101
FJÁRSKAÐI í ÖLDUHRYGG
eftir BJÖRN EGILSSON Á SVEINSSTÖÐUM
SvartÁrdalur er vestastur af Skagafjarðardölum. Eftir hon-
um fellur Svartá. Hún hefur upptök sín í slakka uppi á hálendinu fyrir
botni dalsins. Þar eru vatnslindir miklar, og heita þar Pollar. Svartá er
straumhörð og stórgrýtt. Sums staðar rennur hún í allmiklu gljúfri,
en annars staðar á milli hárra bakka. Hlíðar dalsins eru grösugar og
víða grónar upp á brúnir, einkum að vestan, og beitiland er þar gott.
Um síðustu aldamót voru sjö bæir í dalnum, fjórir að vestan og
þrír að austan. Allir bæirnir vestan árinnar eru nú komnir í eyði og
fremsti bærinn að austan, Fremri-Svartárdalur. Fremsti bærinn að
vestan og einnig í dalnum var Ölduhryggur. Þar var naumlega tveggja
kúa tún og útheyskapur lítill. Á seinni hluta 19. aldar var þar eitt af
stærsm búum í Lýtingsstaðahreppi. Búsæld þar byggðist á því, að þar
er sauðland mjög gott, meðan til þess nær. Sumir telja, að vegna
fjölbreytni gróðurs séú landgæði hvergi jafn mikil í Skagafjarðar-
dölum. Sá annmarki fylgir þó Ölduhrygg, að þar er oft snjóþungt,
einkum ef vestanátt er ríkjandi.
Á útmánuðum 1908 varð mikill fjárskaði í Ölduhrygg, sem hér
verður nokkuð sagt frá. Bóndi þar var þá Rósant Pálsson, og skulu
nú rakin nokkur æviatriði hans, áður en hann fluttist að Ölduhrygg.
Rósant var fæddur að Kolgrímastöðum í Eyjafirði 13. nóvember
1864. Hann var í beinan karllegg kominn af bændum í Saurbæjar-
hreppi í 6 ættliði. Faðir hans var Páll bóndi á Kolgrímastöðum
Pálsson, en móðir Rósa Jónsdóttir, seinni kona hans. Rósant var
hálfbróðir (sammæðra) Kristins Jónssonar, er villtist suður Sprengi-
99