Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2014, Blaðsíða 53
52
sem báðir eru miklir áhugamenn um Ísland og hafa tekið virkan þátt í
starfi Félagsins Ísland Brasilía, hversu mikilvægur hinn íslenski uppruni
er í hugum þeirra beggja. Báðir eru þeir vel menntaðir og teljast til efri
millistéttar innan brasilísku stéttaskiptingarinnar. Marco segir íslenskan
uppruna hafa tilfinningalegt gildi fyrir sig, ekki síður en menningarlegt,
og segist geta greint margt í fari afkomenda Brasilíufaranna sem gefi til
kynna norrænan uppruna þeirra. Uppruninn tengi þá og aðra íslenskætt-
aða Brasilíubúa við germanska og norræna hugsun og hegðun og sé þar af
leiðandi tenging við mótmælendatrú, heiðarleika, vinnusemi og dugnað.
Þetta eru eiginleikar sem bæði Marco og Paulo finnst vera í andstöðu við
ríkjandi hugsunarhátt í brasilísku samfélagi. Jeffrey Lesser hefur einmitt
bent á að í brasilísku samfélagi fyrri tíma hafi verið litið svo á að sterk
tengsl væru á milli Lútherstrúar, Þjóðverja og heiðarleika, dugnaðar og
vinnusemi89 og rímar það vel við umræðu Dávila um hvernig „hvítleiki“
var tengdur ákveðnum gildum í brasilísku samfélagi.
Internetið hefur haft mikil áhrif á bæði innbyrðis samskipti íslenskætt-
aðra Brasilíubúa og samskipti þeirra við Íslendinga. Mannfræðingurinn
Daniel Miller hefur bent á hvernig internetið er notað í samtímanum
sem einskonar rými til sjálfsmyndasköpunar sem byggist meðal annars á
uppruna.90 Hann leggur áherslu á internetið sem rými þar sem sjálfsmynd-
in mótast bæði á hnattrænan og staðbundinn hátt. Internetið er þann-
ig mikilvægur vettvangur fyrir Brasílíubúa til að rækta sjálfsmynd sína
sem byggða á íslenskum uppruna. Þannig geta íslenskættaðir Brasilíubúar
tengst uppruna sínum á ólíkan hátt, annars vegar innan samfélags afkom-
enda Íslendinga í Brasilíu og hins vegar með því að hefja rafrænt samband
við Íslendinga og íslenskar stofnanir og fyrirtæki. Þetta er greinilegt á
samfélagssíðum eins og orkut og Facebook, þar sem hópurinn Íslendingar
í Brasilíu (Islandeses no Brasil) hefur verið stofnaður í þeim tilgangi að
fræða íslenskættaða Brasilíubúa um uppruna sinn, með sérstakri áherslu á
ættfræði.
Á síðu afkomenda Brasilíufaranna á samskiptasíðunni orkut er að finna
miklar ættfræðilegar upplýsingar sem settar hafa verið á netið af afkom-
endum Íslendinga. Líta má á slíka ættfræðilega tengingu sem sönnun á arf-
leifð viðkomandi og jafnframt sem áherslu á líffræðilegan uppruna. Þrátt
fyrir þennan áhuga á uppruna og því að fá hann staðfestan af öðrum kom
89 Jeffrey Lesser, Negotiating National Identity, bls. 19.
90 Daniel Miller, Future Identities. Changing Identities in the UK – the next 10 years,
gefið út á vegum bresku ríkisstjórnarinnar 2013, bls. 3–4.
EyRún EyþóRsdóttiR oG KRistín LoftsdóttiR