Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2014, Blaðsíða 126
125
alfarinn 1886.19 Enn þá eftirtektarverðara er að Hulda segi ekki frekar
frá Ameríkuferðum sem voru í hámarki þegar hún var barn og ungling-
ur og margt skyldfólk og vinir foreldra hennar höfðu hleypt heimdrag-
anum. Ef til vill tengist það þögninni um vesturfarirnar að Hulda getur
þess ekki þegar hún minnist á Beggu, fósturdóttur Jóns Jóakimssonar á
Þverá í Laxárdal, afa síns, og seinni konu hans, Bergljótar Guttormsdóttur,
hverra manna hún var. En þessi Bergljót (f. 1873), sem vafalaust hefur
þegið nafn af fóstru sinni, stjúpu Benedikts á Auðnum, var dóttir Tómasar
Halldórssonar bónda í Kasthvammi í Laxárdal. Var Tómas bróðir forn-
vinar Benedikts Jónssonar, Jóns Halldórssonar, sem fór frá Stóruvöllum í
Bárðardal til Milwaukee í Wisconsin 1872.20 Ekkja Tómasar og öll önnur
börn hans, sem upp komust, nema Bergljót, fluttu vestur til Nebraska árið
1888 á vit Jóns Halldórssonar og konu hans Þórvarar Sveinsdóttur frá
Garði í Aðaldal.21 Þórvör hafði farið til Milwaukee með Sigfúsi Magnússyni
frá Grenjaðarstað, frænda sínum, árið 1873.22
Áður en Jón Halldórsson fór til Ameríku höfðu þeir Benedikt Jónsson,
Sigfús o.fl. verið í samlögum um að útvega sér bækur til lestrar, íslensk-
ar og erlendar.23 Í bréfasafni Benedikts á Landsbókasafni eru varðveitt
fjörutíu og fjögur bréf frá Jóni, þar af þrjátíu og fjögur sem skrifuð eru
í Bandaríkjunum á árunum 1873–1914, tuttugu og átta þeirra fram til
1889.24 Benedikt hafði jafnvel hugsað sér að flytjast vestur í stað þess að
fara að hokra á Auðnum, hjáleigu frá Þverá þar sem faðir hans bjó rausn-
arbúi.25 Benedikt sinnaðist við Jón um það leyti, sem Tómas, bróðir Jóns,
lést, út af rekstri hreppa á Íslandi sem Jón taldi bitna á fátæklingum eins
og Tómasi en Benedikt hreppstjóri tók það óstinnt upp.26 Jón hélt þó
áfram að skrifa vini sínum, en með hléum. Síðasta bréfinu, sem dagsett er
10. nóvember 1914, lýkur hann með orðunum: „Hún Hulda litla er upp-
19 Júníus H. Kristinsson, Vesturfaraskrá 1870–1914, Reykjavík: Sagnfræðistofnun,
1983, bls. 53, 322.
20 Júníus H. Kristinsson, Vesturfaraskrá 1870–1914, Reykjavík: Sagnfræðistofnun,
1983, bls. 318.
21 Hallgrímur Pétursson, Laxdælir. Ábúendatal í Laxárdal í Suður-Þingeyjarsýslu 1688–
1990, Reykjavík: ættfræðistofa Þorsteins Jónssonar, 1991, bls. 24–25.
22 Júníus H. Kristinsson, Vesturfaraskrá 1870–1914, bls. 291; Sigfús Magnússon,
Ferðalög og flakk, Lbs. 5314 4to.
23 Sveinn Skorri Höskuldsson, Benedikt á Auðnum, bls. 454–455.
24 Benedikt Jónsson, Bréfasafn, Lbs. 4415–4419 4to.
25 Sveinn Skorri Höskuldsson, Benedikt á Auðnum, bls. 44–50.
26 Jón Halldórsson, Atriði ævi minnar. Bréf og greinar, Reykjavík: Háskólaútgáfan,
2005, bls. 114–120.
„SYNG, FRJÁLSA LAND, ÞINN FRELSISSöNG“