Jón á Bægisá - 01.12.2010, Síða 96
Marteinn Lúther — Anna Sigurbjörg Sigurðardóttir
Svo ég snúi mér mér aftur að efninu: Ef pápistinn ykkar ætlar að vera
með mikinn uppsteyt vegna orðsins „sola — einn saman“ þá svaraðu honum
að bragði: Þannig vill doktor Marteinn Lúther hafa þetta, og segðu: Pápisti
og asni eru eitt og hið sama. Sic volo, sic iubeo, sit pro ratione voluntas.1
Því við viljum ekki vera nemar eða lærisveinar pápistanna heldur viljum
við vera lærimeistarar þeirra og dómarar. Þeir vilja líka spranga um og
stæra sig af sínum asnahausum;2 og eins og heilagur Páll lofar sjálfan sig
gegn sínum vitfirrtu dýrlingum þannig vil ég líka lofa mig gegn mínum
ösnum.3 Þið eruð doktorar? Ég líka! Þið eruð lærðir? Ég líka! Þið eruð
predikarar? Ég líka! Þið eruð guðfræðingar? Ég líka! Þið eruð ræðumenn?
Ég líka! Þið eruð heimspekingar? Ég líka! Þið eruð rökræðugarpar? Ég líka!
Þið eruð fyrirlesarar?4 Ég líka! Þið skrifið bækur? Ég líka.
Og ég held áfram að lofa mig: Ég get lagt út af Sálmunum og Spá-
mönnunum; það getið þið ekki! Ég kann að þýða; það kunnið þið ekki.
Ég kann að biðja, það kunnið þið ekki. Og hvað lítilsverða hluti áhrærir:
Ég skil ykkar eigin rökræðufræði og heimspeki betur en þið allir til sam-
ans. Og ennfremur veit ég fyrir víst að enginn ykkar skilur fræðin hans
Aristótelesar ykkar.5 Og finnist meðal ykkar allra einhver sem skilur eitt-
hvert forspjall eða kafla Aristótelesar rétt þá þá skal ég láta tollera6 mig. Ég
er ekki að taka of stórt upp í mig með þessum orðum því ég er uppalinn
1 Þýð.: Juvenal, 1.-2. öld eftir Krist, Satires 6:223: „Þannig vil ég hafa það, þannig legg ég
fyrir að vera skuli; látið niinn vilja vera nseg rök.“ Þýska: „So will ich’s; so befehle ich’s; als
Begriindung gelte mein Wille.“ Enska: „Tlius do I want it, thus do I command it; let my
will be reason enough."
2 Þýð.: Lúther kallar hér og víðar kaþólikkana asna og asnahausa. Þarna er líklega vísun
í það fýrirkomulag sem var í skólagöngu hans þegar skólapiltar áttu að tala latínu allan
daginn en einn þeirra sem kallaður var Lupus (= úlfur) var settur í að fýlgjast með og
tilkynna ef einhver talaði þýsku. Sá skólapiltur var þá látinn bera asnahaus eða asnagrímu
á höfðinu fýrir þá yfirsjón að tala þjóðtungu sína. Lúther gefur hérna óbeint í skyn að
„pápistarnir" séu í raun ekki einu sinni færir um að tala eða skilja latínu, hvað þá heldur
gagnrýna þýðingar af henni. Lúther segir hér að þeir vilji láta sitt fávísa ljós skína.
3 Þýð.: Hér og í næstu línum aðlagar Lúther stíl sinn að Páli postula í Síðara bréfi Páls til
Korintumanna 11:21-23 — ÍB’07, NT bls. 231: „Ég segi það mér til minnkunar að í þessu
hef ég sýnt mig vcikan. En þar sem aðrir láta drýgindalega - ég tala fávíslega - þar geri
ég það líka. Eru þeir Hebrear? Ég líka. Eru þeir fsraels niðjar? Ég líka. Eru þeir Abrahams
niðjar? Ég líka. Eru þeir þjónar Krists? - Nú tala ég eins og vitfirringur! - Ég fremur.
Meira hef ég unnið, oftar verið í fangelsi, fleiri högg þolað og oft dauðans hættu.“
4 Þýð.: Þýska: Legenten= fýrirlesarar á háskólastigi.
5 Þýð.: Aristóteles 384-322 f.K. Heimspeki hans var grundvöllur að allri vísindaiðkun
miðalda og voru fræði hans og kunnátta eða vankunnátta í þeim því oft notuð til árása af
siðbótarmönnum.
6 Þýð.: Þraut eða ráðning sem nýsveinar í skóla urðu að sæta þar sem þeim var kastað upp
í loftið og þeir svo gripnir. Þekkt vígsluathöfn busa (nýnema) í MR og MA.
94
á JffiœpÁiá - Tímarit um þýðingar nr. 14 / 2010