Tímarit Máls og menningar - 01.02.2009, Blaðsíða 72
72 TMM 2009 · 1
Vilmundur Gylfason
Frá miðlun til
200 mílna landhelgi
Þættir úr sögu íslenskrar sjálfstæðisbaráttu, þar
sem áhersla er lögð á málstað miðlunarmanna
Vilmundur Gylfason alþingismaður var dagskrárstjóri útvarpsins í eina klukku-
stund á páskadag 6. apríl 1980 og flutti þá ásamt öðrum upplesara textann, sem fer
hér á eftir. Þar eð boðskapur hans í þessu útvarpserindi á enn í dag skýrt erindi við
Íslendinga, varð að ráði að bjóða Tímariti Máls og menningar textann til birtingar.
Það er ánægjuleg upprifjun fyrir mig að fara yfir þennan bráðum 30 ára gamla
texta bróður míns, því að sjónarmið hans fóru mjög saman við skoðanir mínar á
stöðu Íslands í samfélagi þjóðanna. Hann var auðvitað Valtýingur eins og ég og
afar okkar báðir.
Þorvaldur Gylfason
Þessi samantekt er tileinkuð hugrökkum mönnum í íslenskri sögu. Þeim
hugrökku mönnum sem á hinum ýmsu augnablikum í sögu þjóðarinn-
ar hafa þorað að rísa gegn viðteknum hefðum, hafa þorað að rísa upp
gegn þjóðernisþembu og að minni hyggju oft misskilinni ættjarðarást til
þess að krefjast þess að samið yrði við útlendinga, að lífinu á Íslandi
skyldi lifað í sátt við umheiminn án þess þó að nokkru yrði fórnað af
sjálfstæði þjóðarinnar að öðru leyti en því að samningar og samvinna
eru ævinlega fórn að hluta.
Málstaður slíkra manna og kvenna hefur auðvitað oft verið erfiður,
röksemdir þeirra oft flóknar. Einkum hefur hann verið erfiður þegar
andspænis þeim hafa staðið hinir ítrustu kröfugerðarmenn, sjálfskip-
aðir þjóðernissinnar. Mannkynssagan þekkir ofstækisfulla þjóðernis-
stefnu í mörgum myndum. Við þekkjum að vísu ekki af eigin reynslu
hernaðarútgáfuna, og ekki heldur aftökupallana. En við þekkjum hin
bitrustu orð, brýningarnar, landráðabrigslin.
En þessi dagskrá er tileinkuð miðlunarfólkinu, alþjóðahyggjunni. Það
er þó fjarri því að þeir sem hafa viljað miðla málum í samskiptum við
TMM_1_2009.indd 72 2/11/09 11:27:29 AM