Tímarit Máls og menningar - 01.02.2009, Blaðsíða 13
S k i p u l a g a u ð n a r i n n a r
TMM 2009 · 1 13
urra hæða „rússneska kumbalda“ eins ódýrt og mögulegt væri á lóðinni
og selja. Í þessu tilviki gaf bæjarstjórinn sig ekki, jafnvel þótt það hefði
verið freistandi vegna aukinna fasteignatekna. Með því að ganga að
kröfunni hefði bæjarstjórnin í raun afsalað sér skipulagsvaldinu í bæjar-
félaginu í hendur fjárfesta og verktaka. Hún hefði líka látið það viðgang-
ast að byggingarfélag, sem tók sjálfviljugt þá áhættu að kaupa rándýra
lóð, gæti velt áhættunni yfir á íbúa í lágreistum húsum í nágrenninu
sem yrðu að sætta sig við að búa í skugganum af íbúðarturnum og stór-
aukna bílaumferð í hverfinu þeirra. nákvæmlega það hefur gerst í
stórum stíl á höfuðborgarsvæðinu síðustu árin og eflaust miklu lengur.
Einkaframtakið hefur alltaf rétt fyrir sér
„Björgólfsfeðgar eru kóngar miðbæjarins“. Þessari fyrirsögn var slegið
upp í blaðinu Sirkus 17. ágúst 2007. Með frétt inni í blaðinu fylgdi kort
þar sem mikill fjöldi húsa, einkum milli Vatnsstígs og Frakkastígs og
einnig milli Vitastígs og Barónsstígs var merktur þeim feðgum. Þeir
höfðu keypt þau öll upp til að rýma fyrir miklum „þéttingaráformum“.
Annars vegar ætlaði eignarhaldsfélag þeirra Samson Properties að
byggja eitt stykki listaháskóla, hins vegar nýjan miðborgarkjarna með
verslunum, þjónustu, veitingahúsum, kvikmyndahúsum og íbúðum og
að sjálfsögðu fjögurra hæða bílageymslu. Björgólfur Guðmundsson átti
líka Hampiðjureitinn og svo var hann stjórnarformaður eignarhalds-
félagsins Portus sem hefur verið að byggja tónleika- og ráðstefnuhöllina
á Austurbakkanum og ætlaði víst líka að skipuleggja og byggja upp
fyrir hugað Reykjastræti sem átti að tengja tónleikahúsið við Lækjartorg.
Við Reykjastræti áttu að rísa höfuðstöðvar Landsbankans, stórt hótel og
svo stórhýsið WTCR, World Trade Center Reykjavík. Það stóð sem sé til
að gera Ísland að einni að helstu miðstöð fjármálakerfisins í heiminum,
rétt eins og helsti hugmyndafræðingur nýfrjálshyggjunnar Hannes
Hólmsteinn Gissurarson hafði boðað árið 2002 í bók sinni Hvernig getur
Ísland orðið ríkasta land í heimi? Þetta gekk ekki eftir og við sitjum uppi
með mikla auðn og eitthvað sem líkist rústum. Enginn vafi leikur á að
uppbyggingaráform Björgólfs Guðmundssonar voru mjög metnaðarfull.
En það má spyrja hvort hann hafi ekki verið ofmetinn sem helsti hugs-
uður og skipuleggjandi miðborgarinnar. Það er engu líkara en yfirvöld
hafi afsalað sér sjálfu skipulagsvaldinu. Á vissan hátt er það þó rökrétt
því það hefur verið ríkjandi skoðun, nánast trúarsetning, að árangur
einkaframtaksins hljóti alltaf að vera betri en árangur hins opinbera. Að
einkaframtakið hafi alltaf rétt fyrir sér.
TMM_1_2009.indd 13 2/11/09 11:27:24 AM