Tímarit Máls og menningar - 01.02.2009, Blaðsíða 60
L i s a H o p k i n s
60 TMM 2009 · 1
Hótel Borg; fjallið Esju; Hallgrímskirkju, hæstu byggingu á Íslandi og
endurvarpsmastrið sem hún var byggð til að fela; þann sið Íslendinga að
borða rjúpu á jólunum; og hið vinsæla Áramótaskaup (sem Hallgrímur
samdi sjálfur í félagi við aðra 2001 og 2002). Að sumu leyti er lestur þess-
arar skáldsögu svolítið eins og að lesa Lonely Planet-ferðahandbókina
um Ísland.
Það reynist þó vera allt annað að lesa skáldsöguna en að horfa á hana.
Þrátt fyrir kvikmyndaskynjunina í bók Hallgríms er athyglisvert að
löngun Hlyns til að horfa nær ekki til þess að láta horfa á sig. Seint í
skáldsögunni lýsir hann því yfir að „Alltaf þegar fólk horfir á mig hverf-
ur hluti af sjálfum mér“ (303); áður hefur hann hugsað að „Það er ein-
hvernveginn góður fílingur í því að búa á eyju sem ekki kemur fram á
heimskortinu. Svona stikkfrí. Við erum ekki með. Við bara horfum á en
það sér okkur enginn“ (142). Við skynjum sögu hans í reynd með tals-
vert öðrum hætti þegar hún flyst frá síðu á tjald og að sumu leyti reynist
það ekki henta Hlyni vel sem bókmenntaafurð að horft sé á hann því að
Baltasar Kormákur virðist í mynd sinni aðeins vilja eða geta fjallað um
suma af veigamiklum efnisþáttum í skáldsögunni. Í myndinni kemur
vissulega fram sams konar áhugi á íslenskri menningu og í upphaflegu
bókinni – þar er tónlist eftir damon Albarn, sem átti bar í Reykjavík
með Baltasar, og þar sem hún var tekin á vettvangi er hún jafn mörkuð
og bókin af umhverfinu og andrúmsloftinu í miðbæ Reykjavíkur. Hún
bregst líka, kannski óhjákvæmilega, við kvikmyndaskynjun bókarinnar
– stúlka á K-barnum segir við Hlyn „Voðalega eruð þið eitthvað stífir.
Mætti halda að þið væruð í beinni“; Hlynur lætur sig sjálfan dreyma um
að skjóta alla í jólaboðinu hjá Elsu áður en myndbandið frá síðustu
jólum er spilað; og hann segir um flugeldana á gamlárskvöld: „It looks
much better on TV, you know. It looks more real somehow“ („Þetta er
miklu raunverulegra í sjónvarpinu“).
En í kvikmyndinni er afar lítill gaumur gefinn að hamletþemanu sem
voru gerð svo rækileg skil í upphaflegu bókinni, þótt síðari kvikmynd
Baltasars Kormáks, Hafið (2002), einnig með Hilmi Snæ Guðnasyni,
sem lék Hlyn, í aðalhlutverki, hafi verið borin saman við Lé konung (og
þar sé einnig lögð rækt við metabíó – ein persónan staðhæfir „Við erum
ekki í kvikmynd“, og systir aðalsöguhetjunnar, Ragnheiður [Guðrún
Gísladóttir], hafði stundað nám í kvikmyndaskóla í Póllandi). Enda þótt
kvikmyndin 101 Reykjavík gerist að miklu leyti um jól, líkt og hin
Hamlet-útgáfan, Bleak Midwinter, og hún hefjist með því að Hófí tekur
gleraugun af Hlyni í miðjum samförum er þetta atriði aðeins endur-
ómur af Ödipusar-undirtextanum í Hamlet en ekki textanum sjálfum.
TMM_1_2009.indd 60 2/11/09 11:27:28 AM