Tímarit Máls og menningar - 01.02.2009, Blaðsíða 43
E n g i n g l æ pa s a g n a k r e p pa
TMM 2009 · 1 43
Akureyri og rannsakar dularfullan húsbruna á Ísafirði. Þar kynnir
hann sér ástand mála, ræðir við bæjarbúa og vinnur að úttekt á atvinnu-
lífinu á staðnum um leið og hann grennslast fyrir um brunann sem á
eftir að vinda upp á sig; í framhaldinu finnast tvö lík í stolnum húsbíl
sem hefur kviknað í.
Einar blaðamaður hefur þróast mikið í þeim sex bókum sem Árni
hefur skrifað um hann þó að stærsta framfaraskref persónunnar hafi
verið þegar hann glímdi við áfengisfíknina og hætti að drekka. Um leið
og minni orku var eytt í drykkjulýsingar varð persónan öll skarpari og
Einar er orðinn einn af skemmtilegustu samfélagsrýnum glæpabók-
menntanna.
Annað einkenni á þessari sögu er að Árni nær oft feykivel að ljá pers-
ónum sínum talsmáta og orðalag sem gera textann meinfyndinn og
skemmtilegan. Þegar Einar heimsækir bæjarstjórann er hann eins og
upp úr kennslubók í stjórnmálatali:
„Við lifum ekki til framtíðar með því einu að anda að okkur hreinu lofti og horfa
á fallega fjallasýn,“ segir bæjarstjórinn ákveðinn […] „Við þurfum að efla sam-
heldni og bjartsýni, auka mönnum þor og kjark til að fjárfesta og taka yfirvegaða
áhættu […] Við verðum að horfa til framtíðar með opnum huga fyrir nýjum
tækifærum.“ (46)
Og sama má segja um aðrar persónur, eins og Oddnýju Idol sem er
stjarna í sínum heimabæ eftir að hafa náð langt í söngþættinum Idol.
„Ég er fædd til að verða söngkona. Það segja allir.“ Hún lítur einu sinni enn á
gemsaskjáinn. „Maður þarf bara að fá tækifæri. Þetta er svo erfiður markaður.
Idolið var fínt tækifæri. En það er ekki svo auðvelt að komast alla leið þegar
maður kemur úr litlu plássi úti á landi. Þú veist, þegar innhringingarnar byrja.“
(169)
Þeir sem þekkja vel til sagna Árna munu fá það sem þeir reikna með:
Einar í góðu formi og nýju umhverfi, skemmtileg samtöl og fléttu sem
gengur upp. Stundum mætti hins vegar að ósekju skera niður án þess að
það bitnaði verulega á framvindunni og gera söguna þannig snarpari og
meira spennandi.
Fyrsta glæpasaga Jóns Halls Stefánssonar, Krosstré (2005), sló í gegn.
Styrkur hennar fólst ekki síst í áhugaverðu fjölskyldudrama sem var
miðlægt í sögunni og sannfærandi skiptingu milli sjónarhorna þar sem
lesandi fylgdist með félögunum Marteini og Hallgrími og fjölskyldulífi
þeirra.
Árið 2008 fylgdi Jón Hallur henni eftir með annarri sögu, Varginum,
TMM_1_2009.indd 43 2/11/09 11:27:27 AM