Tímarit Máls og menningar - 01.02.2009, Blaðsíða 143
d ó m a r u m b æ k u r
TMM 2009 · 1 143
heyrði menn fara með kvæði Arnar Arnarsonar í hans viðurvist (72). Óskar
Árni Óskarsson er líkur frænda sínum að því leyti að hann hefur verið hálf-
gerður huldumaður í íslenskum bókmenntum þó reyndar megi fullyrða að fáir
njóti meiri virðingar meðal kollega sinna en hann. Í Íslenskri bókmenntasögu
Máls og menningar er hans aðeins getið á einum stað fyrir hækur sínar og
útgáfu á tímaritinu Ský. Þórbergur Þórðarson var utangarðs í íslenskri bók-
menntaumræðu vegna óvenjulegrar formhugsunar og flókinna tengsla milli
ævi hans og verka en á síðustu misserum hefur orðið breyting þar á og segja má
að höfundarverk hans hafi gengið í endurnýjun lífdaga vegna þeirrar umræðu-
hefðar sem nú er að skapast um það. Smáprósar Óskars Árna falla illa að upp-
byggingu bókmenntasögu sem miðast fyrst og fremst við flokkana; ljóð, leikrit
og skáldsögur en sjái menn hann fyrir sér í kompaníi við Þórberg þá ætti eng-
inn að velkjast í vafa um að hér eru á ferðinni fagurbókmenntir. Sjálfur virðist
Óskar Árni sjá Þórberg fyrir sér sem nokkurs konar ferðafélaga og í því sam-
bandi mætti benda á ljóðið „Á vegum úti“ úr bókinni Loftskip frá árinu 2006.
Þegar Óskar Árni las upp á Bókmenntahátíð í Reykjavík 2005 ásamt Andrej
Kurkov, James Meek og Hanan al-Shaykh má segja að hann hafi stolið senunni.
Þetta er rifjað upp hér vegna þess að Óskar Árni Óskarsson skrifar bækur sem
höfða nær undantekningarlaust til þeirra sem komast í kynni við þær; hann er
óvenjulegur höfundur og nú eru runnir upp óvenjulegir tímar.
Tilvísanir
1 Óskar Árni Óskarsson: Handklæði í gluggakistunni, Blekkbyttan: Reykjavík, 1986, s. 37.
2 Óskar Árni Óskarsson: Vegurinn til Hólmavíkur: ferðaskissur, Bjartur: Reykjavík, 1997, s. 69.
3 Óskar Árni Óskarsson: Skuggamyndir á ferðalagi, Bjartur: Reykjavík, 2008, s. 7. Framvegis
verður vísað í bókina með blaðsíðutali innan sviga aftan við tilvitnanir.
TMM_1_2009.indd 143 2/11/09 11:27:33 AM