Tímarit Máls og menningar - 01.03.2014, Síða 112
Þ o r s t e i n n A n t o n s s o n
112 TMM 2014 · 1
land. Þrátt fyrir hin jarðsögulegu rök verður að ætla að þróun menningar við
slík skilyrði, Egypta, Rómverja, hafi mestan part orðið til fyrir hendingar.
Við bætist að tegundir manndýra voru nokkrar á forsögulegri tíð. Okkar er
sú eina sem eftir lifir. Hinum tegundunum hafa erjur og náttúruhamfarir
útrýmt.
3. Veruleiki eða blekking
Menn eru dýrategund sem á hundruðum árþúsunda, ef ekki milljónum,
hefur ræktað sig sjálfa með líkum hætti og eigin húsdýr. Allt námsval
beinist í þá átt. Einnig hjúskaparsáttmálar. Maðurinn hefur við sjálfsræktina
glatað eðlisávísunum sínum, rétt eins og húsdýr hafa orðið fyrir þeim
firnum af sama tilefni. Menn hafa framlengt fósturstigið. Af þessari vís-
vituðu stjórnsemi manndýrsins sem nú lifir hafa leitt efld skilyrði til óhlut-
bundinnar hugsunar, þróunar tungumála og þar með til frjálsari tjáskipta,
listsköpunar, vísindalegrar hugsunar og í framhaldi af henni hagnýtingar
tæknikunnáttu. Þau andlegu og líkamlegu umskipti sem af þessari ræktun
manna á mönnum hefur leitt – hafa augljósa kosti. Gallarnir eru einnig
umtalsverðir: Einkum hefur veruleikaskynið brenglast. Samanborið við
menn hafa villt dýr ofurnæmt veruleikaskyn. Ef eitthvað vantar á að eðlilegt
sé í náttúrlegu umhverfi dýra forðast skepnan það eins og um líf og dauða
sé að tefla. Einmitt fyrir það hversu frjálsir menn eru fyrir þessar tilgreindu
orsakir óttast dýrin menn fremur en aðrar tegundir lífvera. Eðlisávísun
manna er skert, þar með skynið á veruleikann. Sem tegund lífvera eiga menn
því ekki afturkvæmt til náttúrunnar, ekki frekar en húsdýrin. Í staðinn býr
útlaginn, hinn mennski maður, sér til ímyndaðan heim og hefur alltaf gert í
sögu mannkynsins. Af því segir með myndríkum hætti í fornum heimildum.
Á sögulegri tíð hefur þessi ímyndaði heimur mannfólksins verið trúarbrögð
í margskonar mynd. Þau úrskurða um það hver skuli teljast manneskja og
hver dýr. Þau skipta hegðun manna í illa og góða af miklum strangleika. Með
tilvísunum trúarbragðanna á algildan sannleika sem svo telst vera.
Borgarmenningin er hins vegar nýtt stig í þessari löngu sögu. Hún fylgir
fram opinskátt nauðsyn blekkingar, einkum með tækni eins og sjónvarpi
og öðrum myndmiðlum borgaralegs þjóðfélags. Samkvæmt þeim miðlum
hafa menn og menning orðið til fyrir tilviljanir. Rökrétt er því að álykta að
nánast engin líkindi séu á sambærilegum lífverum við okkur menn á öðrum
hnöttum. Innan þeirra marka sem nokkur von er um að mannlegt hugvit geti
spannað. Jörðin eins og hún birtist á skjánum er einstæð í himingeimnum,
eins og skel á hafsbotni sem ein inniheldur hina dýrustu perlu. Við menn
erum undantekning, frávik, svo á jörðinni sem annars staðar, orðnir til að
mestu fyrir eigin tilverknað. Við eigum vitundarlíf okkar eitt sameiginlegt
með öðrum öflum tilverunnar en næsta manni. Svo á jörðu sem á himni.