Rauðka : úrval úr Speglinum - 01.06.1944, Page 19
sem er. — Þessi hópur okkar, sem verður á ferð-
inni 1. maí, er vísir til hinnar vaknandi íslenzku
æsku. Samkvæmt lauslegri áætlun eiga tveir okk-
ar að liggja eftir dauðir á blóðvellinum, og væri
— útbreiðslustarfseminnar vegna — heppilegast,
að það yrðu þeir feitustu, eins og Morten eða
Siggi Ben., en nú er ekki víst, að þeir gangi inn á
þetta, og þá getur alveg eins komið að þér, því eins
og þú sérð sjálfur dugar ekkert, þó einhver þykist
missa augað og gangi með umbúðir í nokkra daga,
— það er bara gert grín að því.
Til þess að búa þig undir þessa baráttu fyrir
þjóðina okkar, VERÐUR ÞÚ að mæta á fánaliðs-
æfingu, sem verður haldin................Ef þú
skrópar eða verður veikur, verður þú ekki lengur
talinn sannur þjóðernissinni, og verður þá sjálf-
kjörinn til að liggja eftir skorinn á blóðvellinum
1. maí. Þætti þér gaman að því?
Nú er um að gera að láta ekkert stöðva fylk-
ingu hinnar vaknandi æsku íslands, sem funandi
af fórnfýsi gengur taktfast um götur Reykjavíkur
(þær skárstu) 1. maí 1936.
Verði gróandi þjóðlíf með þverrandi tár! (Já,
heyrirðu það; þér þýðir ekki að fara að skæla!)
íslandi allt!
Fánaliðsstjóri SPEGILSINS.
Álit sérfræðings vors.
Menn sjá strax við fyrstu sýn, að gegnum allan
ofstopann og óhemjuskapinn skín lymskan og
flærðin út úr hverri setningu í ritsmíð þessari, og
nær hámarki sínu í „íslandi allt“, sem guð má
vita, hvar þeir hafa stolið. Það tekur talsverða
umhugsun að gera sér fulla grein fyrir því, hvað
það er, sem Pálmi rektor hefur forðað þjóð og
ríki frá með glöggskyggni sinni á sálarlíf ofstopa-
manna (ef sálarlíf skyldi kalla). Auðvitað sá hann
strax — í ljósi undanfarinnar landráðastarf-
semi — að þegar óaldarseggirnir tala um tvo
menn dauða á vígvellinum, þá er þetta bara
skeytadulmál og þýðir alls ekki tvo, heldur 20 eða
200. Og ef þeir ætla að fórna 200 stykkjum sjálf-
ir, hvaða mannfall ætli þeir hafi þá reiknað óvin-
unum ? Minnst 400, því að ekki vantar sosum belg-
inginn hjá þessum spírum. Og halda menn kann-
ske, að þeir hefðu valið lökustu menn þjóðarinn-
ar? Nei, og aftur nei! Náttúrlega hefðu þeir nú
aldrei þorað í Hermann; til þess þarf hugrekki,
af því Hermann er svo sterkur, en hvað segið þið
um Eystein ? Og hvað um Tíma-Gísla ? Ekki þyrfti
meira en nazistalag til að koma að honum hægra
megin og bregða fyrir vinstra fótinn, þá er hann
dottinn! Eða hvað segið þið um Jónas, gamlan og
örvasa? Hvernig hefði ykkur, góðir íslendingar,
þótt að vera Eysteins-lausir, Gísla-lausir og Jón-
asar-lausir að kvöldi þess 1. maí?
Pálmi enn.
Og Pálmi rektor lét ekki þar við sitja, heldur
kallaði hann órólegu elementin í skólanum á sinn
fund, og bauð þeim að velja milli nazismans og
skólaverunnar. Auðvitað kusu þeir skólaveruna,
því að hugrekkið er ekki meira en guð gaf. Eru
þeir nú orðnir allra beztu kommar og fá sem slíkir
að marséra 1. maí, og þar með er í rauninni allt
fengið. Hefur Pálmi því það fram yfir guð, að
hafa gert alla ánægða.
Ályktun.
Menn eru kannske hissa á því, að svona hug-
rekki og snarræði, eins og þeir tvímenningarnir
15