Rauðka : úrval úr Speglinum - 01.06.1944, Blaðsíða 45
Pípuhattar og þjóðþrií.
(XI. 19.—20.)
Margar fyrirspurnir hafa etíkettudeild vorri
borizt um það, hversvegna þeir ráðherrarnir Ey-
steinn og Haraldur hafi ekki mætt með pípuhatta
við frönsku jarðarförina á miðvikudaginn var, og
munum vér reyna að svara þeim eftir beztu getu,
enda þótt svörin verði að mestu leyti tilgátur, sem
menn svo verða að vinsa úr. Fyrst er að snúa sér
að Eysteini. Oss minnir fastlega, að vér höfum
séð hann með pípuhatt við konungskomuna eða
einhverja þessháttar samkomu, og liggur því nærri
að halda, að búið sé að stela hattinum frá hon-
um, því að „sjaldan er ein báran stök“. Eru forn-
salar hér með aðvaraðir um að láta sig ekki henda
sömu skissuna og Guðmund Gamalíelsson að fara
að borga peninga upp á söluvonina, ef einhver
lazzaróni, flokksbróðir Eysteins eða úr samfylk-
ingunni skyldi koma með hattinn og vilja selja.
Aðrir segja, að fordæmi Jónasar hafi verið svo
ríkt hjá Eysteini, því að Jónas brúkaði aldrei pípu-
hatt nema í SPEGLINUM. Þriðja tilgátan er sú,
að ef Eysteinn noti pípuhatt, lendi andlitið á miðj-
um manninum, og er það ósmekklegt, en frum-
legt, og hvorugt á við Eystein. Hvað Harald snert-
ir, þarf ekki að ganga í grafgötur um ástæðuna,
sem sé að þóknast hinum vinnandi stéttum, sem
náttúrlega ekki nota pípuhatt að jafnaði, en gætu
þó sennilega séð slíkt verkfæri við hátíðleg tæki-
færi, án þess að hneykslast allt of mjög. En Har-
aldur ku nú samt ætla að mæta með kagga við
næstu háskólasetningu, ef einhverjir úttlendingar
verða þar viðstaddir, en færri úr vinnandi stétt-
um.
Loks má nefna þá tilgátu, að stjórnin eigi ekki
ekki Awnaá
VsAnn eí
ÍMnu ykkwr
kftnn
nema einn pípuhatt, og hafi Hermann, sem er
sterkastur, lagt hann undir sig.
að nokkrum hluta af skatti þeim, er vér stjórnar-
sinnar greiðum til flokksins, verði framvegis var-
ið til að kaupa og viðhalda vasabók handa Ey-
steini, sem samboðin sé honum og íslenzka ríkinu.
Leggjum vér og til, að sérstakt embætti sé stofn-
að og heiti embættismaðurinn „Keeper of the
Privy Book“. Með tilliti til þess, að margt mun
verða skráð í bókina á brezkri tungu, og eins með
tilliti til erlendra stórvelda, þykir oss ábyggileg-
ast að hafa embættismanninn á ensku.
ATHS. Það má skjóta því að Alþýðuflokkn-
um, að Ásgeir var við þetta tækifæri með spegil-
fagran pípuhatt. Skyldi hann vera farinn að lin-
ast á því að ganga í Alþýðuflokkinn? Spyr sá,
sem ekki veit.
Seremóníumeistari SPEGILSINS.
RAUÐKA — 6
41