Skýrsla miðstjórnar Alþýðusambands Íslands um starf sambandsins 1946-1948 - 14.11.1948, Side 30
lón Baldvinsson hefur orSið:
í þessu sambandi væri fróðlegt að athuga, hvort finna mætti for-
dæmi hins framanritaða bréfs vors til X.T.F. og er því ekki að leyna,
að þau eru fjölda mörg eins og sjá má af eftirfarandi dæmum, sem
þó eru fá af mörgurn:
Árið 1923, 10. sept., scndir Alþýðusambandið bréf til I.T.F. undir-
ritað af þáverandi forseta þess, Jóni Baldvinssyni, ásamt Héðni Valdi-
marssyni. í bréfi þessu, sem er alllangt mál, er ákveðið farið fram á
aðstoð I.T.F. í deilu þeirri, er Sjómannafélag Rvíkur átti þá i við
útgerðarmenn. Þar er m. a. reynt að grennslast eftir því hvaða ís-
lenzkir menn bafi orðið þess valdir að Jóni Back, þáverandi sendi-
manni íslenzkra sjómannasamtaka, var neitað um landgöngu í Eng-
landi. Og lýkur bréfinu með þessum orðum:
Á ensku
„You will understand that this lockout is allimportant for our
unions and the party in whole, as we have general elections in
october. We trust that you will do what you can for assisting us and
advise us by telegraph, as the raatter is pressing.
Yours sincerely,
For and on behalf of The Socialist Party of
Iceland Executive Committee,
Jón Baldvinsson. HéÖinn Valdimarsson.
Á íslenzku:
„Þið munuð skilja að þetta afgreiðslubann hefur úrslitaþýðingu
fyrir verkalýðsfélög okkar og flokkinn i heild, þar sem alþingiskosn-
ingar fara fram í október. Við treystum því að þið gerið allt sem í
ykkar valdi stendur til að aðstoða okkur, og svarið okkur með sím-
skeyti þar sem málið er mjög aðkallandi.
Yðar einlægir.
F. h. miðstjórnar Sósíalistaflokks íslands.
Jón Baldvinsson. HéÖinn Valdimarsson.
Lesandinn er sérstaklega beðinn að bera saman við bréf vort hinar
tilvitnuðu setningar í bréfi Jóns heitins Baldvinssonar, þar sem hann
ekki aðeins reifar mál sitt á grundvelli verkalýðsmálanna, með tilliti
80